Fótbolti

Mbappé úr skamma­króknum en PSG tókst samt ekki að vinna

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Markvörðurinn Guillaume Restes reyndist PSG óþægur ljár í þúfu.
Markvörðurinn Guillaume Restes reyndist PSG óþægur ljár í þúfu. EPA-EFE/GUILLAUME HORCAJUELO

Kylian Mbappé er kominn úr skammakróknum í París en samt sem áður tókst Frakklandsmeisturum París Saint-Germain ekki að landa sigri gegn Toulouse í frönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Meistararnir gerðu jafntefli í 1. umferð deildarinnar og þar var Mbappé hvergi sjáanlegur enda mikið gengið á milli hans og félagsins í sumar.

Mbappé var á bekknum í dag og kom inn þegar 51 mínúta var liðin en staðan var þá enn markalaus. Rúmum tíu mínútum síðar fengu gestirnir frá París vítaspyrnu. Mbappé fór á punktinn og kom PSG yfir.

Undir lok leiks fengu heimamenn í Toulouse hins vegar vítaspyrnu og úr henni skoraði Zakaria Aboukhlal. Lokatölur 1-1 og ríkjandi meistarar PSG því með aðeins tvö stig að loknum tveimur leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×