Fótbolti

Logi genginn í raðir Strøms­god­set

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Logi Tómasson er genginn í raðir Strøms­god­set.
Logi Tómasson er genginn í raðir Strøms­god­set. Strøms­god­set

Knattspyrnumaðurinn Logi Tómasson er genginn í raðir Strøms­god­set frá uppeldisfélagi sínu Víkingi. 

Þessi 22 ára gamli bakvörður skrifar undir þriggja ára samning við norska félagið, en greint er frá vistaskiptunum á samfélagsmiðlum bæði Víkings og Strøms­god­set.

Logi á að baki 90 leiki í efstu deild á Íslandi og hefur verið á mála hjá Víkingi allan sinn feril, ef frá eru talin lán til Þróttar og FH. Logi lék sinn síðasta leik fyrir Víking er liðið vann afar sannfærandi 4-0 sigur gegn Val í toppslag Bestu-deildarinnar þar sem hann skoraði eitt marka liðsins.

Hjá Strøms­god­set hittir hann fyrir íslenska miðvörðinn Ara Leifsson sem hefur verið hjá félaginu síðan 2020.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×