Viðskipti innlent

SI telja íbúðauppbyggingu fara í öfuga átt

Jón Þór Stefánsson skrifar
Samtök iðnaðarins gagnrýna stjórnvöld fyrir stefnu sína í íbúðauppbyggingu.
Samtök iðnaðarins gagnrýna stjórnvöld fyrir stefnu sína í íbúðauppbyggingu.

Samtök iðnaðarins telja stjórnvöld leggja of litla áherslu á uppbyggingu séreignarhúsnæðis. Nú sé skortur á íbúðum og mikil uppbyggingarþörf en samtökin óttast að íbúðauppbygging stefni í öfuga átt. Þetta kemur fram í nýrri greiningu samtakanna.

Bent er á að samkvæmt könnun Prósents vilji leigjendur frekar búa í eigin húsnæði en hafi ekki kost á öðru. Samtökum iðnaðarins finnst að rammaáætlun að taka frekara mið af því og vilja að stjórnvöld stigi inn og tryggi að íbúðauppbygging verði í takt við þarfir og óskir landsmanna. Þau segja stjórnvöld ekki eiga að festa fólk á leigumarkaði.

„Samtök iðnaðarins telja ólíklegt að markmið rammasamnings stjórnvalda um 35.000 íbúðir náist, nema stjórnvöld beiti sér með markvissum hætti fyrir því að auka uppbyggingu íbúða umfram það sem nú er gert,“ segir í greiningu Samtakanna.

Þar er bent á að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun áætli að á fyrstu 3 árum samningsins verði fjöldi nýbyggðra íbúða undir þörf og markmiðum samningsins, eða um það bil 4.360 íbúðir samanlagt.

„Það er mat Samtaka iðnaðarins að stjórnvöld eigi að hjálpa landsmönnum að eignast sitt eigið húsnæði frekar en að festa fólk á leigumarkaði. Sveitarfélögin bera þar ríkulega ábyrgð að skapa forsendur til þess að framboð íbúða sé nægjanlegt og að þær séu á viðráðanlegu verði,“ segja samtökin jafnframt.

Þar að auki gagnrýna Samtök iðnaðarins stefnu stjórnvalda innan almenna íbuðakerfisins, sem hafa verið kallaðar hagkvæmar íbúðir. Samtökin telja það rangnefni.

„Samtök iðnaðarins telja það rangnefni að kalla íbúðir innan almenna íbúðakerfisins hagkvæmar íbúðir enda eru þær fyrst og fremst íbúðir sem eru niðurgreiddar af hinu opinbera. Að mati Samtaka iðnaðarins er það ekki hagkvæmni að láta kostnaðinn falla á skattgreiðendur,“ segir í greiningunni.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×