Viðskipti innlent

„Þvert á vilja fólksins í landinu“

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI.
Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI. Vísir/Vilhelm

Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins segir áætlanir stjórnvalda í húsnæðismálum fjölga leiguíbúðum þvert á vilja þjóðarinnar. Innviðaráðherra þurfi að taka forystu í málaflokknum gagnvart sveitarfélögunum. 

Í greiningu Samtaka iðnaðarins segir að líklegt sé að leiguíbúðum með opinberum stuðningi muni fjölga meira en íbúðum fyrir séreignamarkað, miðað við áherslur stjórnvalda í húsnæðismálum.

Framkvæmdastjóri Samtakanna segir um 80 prósent fólks búa í eigin húsnæði, á móti 20 prósentum í leiguhúsnæði.

„En ef við skoðum vilja fólks sem er í leiguhúsnæði, og sömuleiðis veltum fyrir okkur fjárhagslegri getu, þá sjáum við að markaðurinn væri í jafnvægi einhverstaðar í kringum 85/15. Vandinn er sá að miðað við stefnu stjórnvalda, bæði ríkis og sveitarfélaga, þá erum við að fara akkúrat í hina áttina á næstu 10 árum,“ segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI.

Of lítil áhersla sé lögð á uppbyggingu séreignahúsnæðis í rammasamkomulagi stjórnvalda um uppbyggingu 35 þúsund íbúða fram til ársins 2032. Gert sé ráð fyrir að fram til þess tíma muni leiguíbúðum með aðkomu hins opinbera fjölga um 85%, að þær fari úr 9.500 í 17.600.

„Og það er bara einfaldlega þvert á vilja fólksins í landinu.“

Einkaaðilar fái verri móttökur

Sveitarfélög hafi greitt götu uppbyggingar á vegum óhagnaðardrifinna leigufélaga.

„Við skiljum það auðvitað að einhverju leyti, en á sama tíma hafa einkaaðilar, verktakar sem vilja byggja íbúðir og selja, fengið verri móttökur hjá sveitarfélögunum.“

Breyta þurfi um stefnu í málaflokkinum.

„Ríkið ætti að horfa meira til hlutdeildarlána heldur en stofnframlaga. Hlutdeildarlánin hjálpa fólki að eignast sitt eigið húsnæði, á meðan stofnframlögin miða að því að byggja upp félagslegt leiguhúsnæði.“

Stjórnvöld hljóti að taka mark á greiningu samtakanna.

„Ég vona svo sannarlega að ríkisstjórnin, með innviðaráðherra í fararbroddi, taki meiri forystu í húsnæðismálum og húsnæðisuppbyggingu, gagnvart sveitarfélögunum. Þannig að uppbyggingin verði raunverulega í takt við þarfir og vilja landsmanna,“ segir Sigurður.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×