Lífið

Guðrún og Jón eiga einstakan tíu fermetra sumarbústað

Stefán Árni Pálsson skrifar
Vala Matt fékk að sjá þennan lygilega sumarbústað, jú og útiklósettið.
Vala Matt fékk að sjá þennan lygilega sumarbústað, jú og útiklósettið.

Það þarf oft ekki marga fermetra til að töfra fram skemmtilegan sumarbústað.

Hönnuðurinn Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir og maður hennar Jón Ásgeir eiga dásamlegan tíu fermetra sumarbústað þar sem ekkert er rafmagnið eða rennandi vatn og Guðrún Lilja smíðaði og innréttaði útiklósett á einstaklega smekklegan hátt.

Og svo eru þau að smíða útieldhús og lokrekkju og fleira skemmtilegt.

Guðrún er ekki bara hönnuður heldur er hún einnig lærður húsgagnasmiður þannig að hún er flink með sögina og smíðar heilmikið sjálf.

Vala Matt leit við hjá Guðrúnu í Íslandi í dag sem sýnt var á Stöð 2 í gærkvöldi og má þar sjá þennan einstaka tíu fermetra sumarbústað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×