Íslenski boltinn

Ás­mundur hættur með Breiða­blik

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Ásmundur er hættur sem þjálfari Breiðabliks.
Ásmundur er hættur sem þjálfari Breiðabliks. Vísir/Hulda Margrét

Ásmundur Arnarsson er hættur sem þjálfari Breiðabliks í Bestu deild kvenna í knattspyrnu. Frá þessu greindi félagið nú rétt í þessu.

„Knattspyrnudeild Breiðabliks og Ásmundur Arnarsson, hafa náð samkomulagi um að hann láti af störfum sem þjálfari meistaraflokks kvenna. Árangur liðsins að undanförnu hefur verið undir væntingum og því hafa aðilar komist að þeirri niðurstöðu að breytinga sé þörf,“ segir í yfirlýsingu félagsins.

Breiðablik tapaði 4-2 fyrir Þrótti Reykjavík í Bestu deildinni á sunnudag og eru Blikar nú átta stigum á eftir toppliði Vals þegar úrslitakeppni deildarinnar er í þann mund að hefjast. Raunar eru Blikar nær FH í 5. sætinu heldur en toppliðinu.

Ásmundur tók við liðinu síðla árs 2021 og stýrði Blikum meðal annars í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu. Eftir slakt gengi í sumar hefur hins vegar verið ákveðið að breyta til og Breiðablik því að þjálfaraleit sem stendur.

Hér að neðan má sjá yfirlýsingu félagsins í heild sinni.

Knattspyrnudeild Breiðabliks og Ásmundur Arnarsson, hafa náð samkomulagi um að hann láti af störfum sem þjálfari meistaraflokks kvenna. Árangur liðsins að undanförnu hefur verið undir væntingum og því hafa aðilar komist að þeirri niðurstöðu að breytinga sé þörf.

Ásmundur hefur verið þjálfari meistaraflokks kvenna síðan haustið 2021 og meðal annars stýrt liðinu í riðlakeppni meistaradeildar Evrópu. Liðið hefur tvisvar leikið til úrslita í Mjólkurbikarnum auk fjölmargara annara leikja og náð miklum árangri. 

Liðið hefur undir hans stjórn glatt stuðningsmenn félagsins með skemmtilegri knattspyrnu og góðum úrslitum. Ásmundur hefur skilað afar miklu starfi innan félagsins í gegnum árin á fjölmörgum sviðum sem þjálfari, foreldri og sjálfboðaliði. 

Knattspyrnudeild Breiðabliks þakkar Ásmundi kærlega fyrir hans störf í þágu félagsins og óskar honum velfarnaðar í næstu verkefnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×