Innlent

Unnið hörðum höndum að því að út­vega ADHD-undan­þágu­lyf

Atli Ísleifsson skrifar
Rúna Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri Lyfjastofnunar, segir að gríðarleg aukning hafi orðið í notkun lyfsins. Auk þess að hafi brigðastýring reynst erfið.
Rúna Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri Lyfjastofnunar, segir að gríðarleg aukning hafi orðið í notkun lyfsins. Auk þess að hafi brigðastýring reynst erfið. Vísir/Vilhelm

Lyfjastofnun og lyfjaheildsalar vinna nú hörðum höndum að því að útvega undanþágulyf vegna hins landlæga skorts á ADHD-lyfinu Elvanese Adult.

Frá þessu segir á vef Lyfjastofnunar en skortur hefur verið á tveimur styrkleikum lyfsins frá í lok júlí, 30 mg og 50 mg. Elvanse Adult 70 mg er hins vegar enn fáanlegt.

Vilhjálmur Hjálmarsson, formaður ADHD-samtakanna, sagði í samtali við fréttastofu í síðustu viku að allt færi úr skorðum hjá þeim einstaklingum sem séu með ADHD þar sem þeir fengju ekki lyfin sín. Lyfið væri jafn ófáanlegt á svörtum markaði og í apótekum.

Rúna Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri Lyfjastofnunar, sagði sömuleiðis að gífurleg aukning hafi orðið í notkun lyfsins auk þess sem erfitt hafi reynst að birgðastýra því.

Væntanleg á næstu vikum

Á vef Lyfjastofnunar segir að síðan tilkynning um skortinn barst hafi Lyfjastofnun ásamt lyfjaheildsölum unnið að því að fá birgðir til landsins. Bæði skráð lyf og undanþágulyf séu væntanleg á næstu vikum í einhverjum mæli.

  • Elvanse Adult 30 mg – væntanlegt í byrjun október. Takmarkað magn undanþágulyfs væntanlegt í september.
  • Elvanse Adult 50 mg – væntanlegt í byrjun september. Takmarkað magn undanþágulyfs einnig væntanlegt í september.

„Samheitalyfið Volidax var markaðssett í ágúst en birgðir kláruðust fljótt og nýjar birgðir ekki væntanlegar aftur fyrr en í lok október.

Lyfjastofnun hvetur þá sem lenda í vanda vegna skortsins að leita til læknis til að fá ráðgjöf varðandi úrræði meðan lyfjasendinganna er beðið,“ segir í tilkynningunni.


Tengdar fréttir

„Eins og að segja við mann­eskju sem notar gler­augu að taka gler­augnafrí“

Konur með ADHD segja ófáanlegt lyf hafa breytt lífi þeirra og gefa lítið fyrir ráðleggingar forstjóra Lyfjastofnunar um að fólk taki sér lyfjafrí. Á föstudaginn greindum við frá því að ADHD lyfið Elvanse í styrkleika þrjátíu og fimmtíu milligrömm væri ófáanlegt og það sama ætti við um samheitalyfið. Þrátt fyrir að skorturinn væri alþjóðlegur hafi hann komið fram fyrr hér á landi en annars staðar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×