Fótbolti

Rosen­borg í undan­úr­slit eftir ó­trú­legan leik þar sem Selma Sól lagði upp tvö

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Selma Sól var frábær í kvöld.
Selma Sól var frábær í kvöld. Rosenborg

Selma Sól Magnúsdóttir kom inn af bekknum og lagði upp tvö mörk sem tryggðu Rosenborg sæti í undanúrslitum norska bikarsins í knattspyrnu eftir hreint út sagt ótrúlegan leik við Stabæk. Þá eru Ingibjörg Sigurðardóttir og stöllur hennar í Vålerenga einnig komnar undanúrslit.

Selma Sól byrjaði leik kvöldsins á bekknum en kom inn þegar tæpur hálftími var til leiksloka og Rosenborg vantaði mark. Þegar þrjár mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma lagði Selma Sól upp jöfnunarmarkið og því þurfti að framlengja.

Þar komst Rosenborg 3-1 yfir áður en liðið slakaði full mikið á og Stabæk jafnaði metin í 3-3. Þá var aftur komið að Selmu Sól en hún lagði upp sigurmarkið á lokamínútu framlengingar og Rosenborg komið í undanúrslit.

Ingibjörg, sem var á dögunum gerð að fyrirliða Vålerenga, var á sínum stað í vörn liðsins þegar það tók á móti Røa í kvöld. Það tók Vålerenga sinn tíma að ganga frá leiknum en tvö mörk með þriggja mínútna millibili um miðbik síðari hálfleiks tryggðu Vålerenga sigurinn, lokatölur 2-0 heimaliðinu í vil.

Ingibjörg spilaði allan leikinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×