Innlent

Sjór gæti flotið upp og grjóti skolað á land í stór­streymi og ó­veðri

Kjartan Kjartansson skrifar
Fyrsta haustlægð ársins skellur á annað kvöld. Sjávarstaða gæti verið óvenjuhá þar sem veðrið hittir á stórstreymi.
Fyrsta haustlægð ársins skellur á annað kvöld. Sjávarstaða gæti verið óvenjuhá þar sem veðrið hittir á stórstreymi. Vísir/Vilhelm

Sjávarstaða gæti orðið óvenjuhá við sunnanvert landið þegar stórstreymt verður um það leyti sem gular stormviðvaranir taka gildi annað kvöld. Hætta er á að sjór fljóti upp á bryggjum og að grjóti skoli upp á vegi eða garða við þessar aðstæður.

Gular viðvaranir fyrir landið sunnan- og vestanvert auk miðhálendisins taka gildi frá klukkan 21:00 annað kvöld. Spáð er sauðaustan hvassviðri eða stormi og rigningu.

Um hálftíma áður en fyrstu viðvaranirnar taka gildi verður flóð á suðvestanverðu landinu. Það verður stærsta útreiknaða stórstreymisflóð ársins samkvæmt viðvörun sem Landhelgisgæslan gaf út í morgun. Því megi gera ráð fyrir nokkuð þungri öldu og áhlaðanda með suður- og vesturströndinni sem geri sjávarhæð mögulega hærri en útreikningar gefa til kynna.

Hvatti Gæslan til aðgæslu við sjávarsíðuna og að eigendur skipa og báta í höfnum huguðu að þeim áður en flóðið og veðrið brestur á.

Ölduspá Vegagerðarinnar sem gildi klukkan 21:00 laugardagskvöldið 2. september. Þá er gert ráð fyrir átta til tíu metra ölduhæð suðvestur af landinu.Vegagerðin

Gætir helst við á sunnanverðu Reykjanesi

Óli Þór Árnason, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir að þegar flóð, mikill vindur og lægð þetta nálægt landi leggist á eitt hafi það áhrif á sjávarhæð. Hún verði hærri fyrir vikið.

Þó að versta veðrið verði ekki byrjað á flóði annað kvöld sé lægðin farin að nálgast. Þá geti áhlaðandi orðið þokkalega mikill.

„Menn þurfa bara að vera vakandi fyrir því að sjávarstaðan sé kannski í hærri kantinum. Sumar bryggjur hafa farið upp undir dekkið þannig að það getur flotið upp einhvers staðar. Eins líka ef vindur stendur þannig beint upp á land getur það ýtt grjóti upp á garða og vegi sem liggja nálægt sjó,“ segir Óli Þór.

Byggð við Faxaflóa og Vestmannaeyjar ætti að vera ágætlega varin í suðaustanáttinni. Áhrifanna af sjávarstöðunni gæti helst gætt á sunnanverðu Reykjanesi, til dæmis Grindavík.

Þrátt fyrir að lægðin gangi tiltölulega hratt yfir landið má reikna með leiðinlegu veðri áfram um helgina. Óli Þór segir að ágætlega hvasst verði og þokkalega kröftugar skúrir.

„Það verður alveg hressilegt veður alla helgina,“ segir hann.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×