Fótbolti

Þjálfari karlaliðsins biðst afsökunar á að hafa klappað fyrir Rubiales

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Luis de la Fuente er þjálfari spænska karlalandsliðsins í knattspyrnu.
Luis de la Fuente er þjálfari spænska karlalandsliðsins í knattspyrnu. Fran Santiago/Getty Images

Luis de la Fuente, þjálfari spænska karlalandsliðsins í fótbolta, hefur beðist afsökunar á því að hafa klappað fyrir ræðu Luis Rubiales, forseta spænska knattspyrnusambandsins, þar sem hann sagðist ekki ætla að segja af sér í kjölfar þess að hafa kysst Jenni Hermoso gegn hennar vilja.

De La Fuente segir að það hafi verið „óafsakanleg mannleg mistök“ að klappa fyrir ræðunni, en bætti einnig við að hann ætlaði sér ekki að segja af sér sem þjálfari spænska landsliðsins.

De La Fuente og starfsbróðir hans hjá spænska kvennalandsliðinu, Jorge Vilda, sáust báðir klappa fyrir ræðunni sem flutt var á neyðarfundi spænska knattspyrnusambandsins. Þeir hafa þó báðir fordæmt hegðun Rubiales í kjölfarið.

„Við hjá spænska knattspyrnusambandinu bjuggumst öll við að við værum að fara að fylgjast með forsetanum segja af sér, en fengum eitthvað allt annað. Það var ekki auðvelt að meðtaka það sem var að gerast,“ sagði De La Fuente á blaðamannafundi í dag.

„Ég þarf ekki að segja af mér. Ég þarf að biðjast fyrirgefningar. Ég gerði mistök, óafsaknleg mannleg mistök. Ef ég gæti ferðast aftur í tímann myndi ég ekki gera þetta aftur,“ bætti De La Fuente við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×