Fótbolti

Fenginn frítt og seldur á tæpa fjór­tán milljarða ári síðar

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Kolo Muani er mættur til Parísar.
Kolo Muani er mættur til Parísar. EPA-EFE/Friedemann Vogel

Ákvörðun Eintracht Frankfurt að semja við franska framherjann Randal Kolo Muani sumarið 2022 hlýtur að vera ein besta ákvörðun í sögu félagsins. Leikmaðurinn var nýverið seldur til París Saint-Germain á 95 milljónir evra eða tæpa 14 milljarða íslenskra króna.

Hinn 24 ára gamli Muani samdi við Frankfurt eftir að hafa spilað með Nantes í heimalandinu frá 2020. Hann naut sín heldur betur í treyju Frankfurt en í þeim 46 leikjum sem hann spilaði þá skoraði hann 23 mörk ásamt því að gefa 17 stoðsendingar.

Eftir að síðasta tímabili lauk fóru orðrómar fljótt á kreik að Frakklandsmeistarar PSG vildu fá franska landsliðsmanninn í sínar raðir. PSG vildi breyta ímynd sinni og gera liðið franskara. Ousmane Dembélé var sóttur frá Barcelona og þá var Muani sóttur til Frankfurt.

Dembélé reyndist Borussia Dortmund jafnvel og Muani reyndist Frankfurt. Dembélé spilaði eitt ár í Þýskalandi áður en Barcelona keypti hann á 135 milljónir evra sem þýddi að Dortmund græddi 100 milljónir evra á aðeins einu ári.

Það er spurning hvort fleiri þýsk lið í framherjaleit horfi til Frakklands fyrst Muani og Dembélé reyndust Frankfurt og Dortmund svona vel.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×