Fótbolti

„Helsti styrk­leiki Gylfa er að hann gerir leik­mennina í kringum sig betri“

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson í leik með íslenska landsliðinu.
Gylfi Þór Sigurðsson í leik með íslenska landsliðinu. Vísir/Vilhelm

Freyr Alexandersson, þjálfari Lyngby, vill ekki gera of miklar kröfur til nýs leikmanns liðsins – Gylfa Þórs Sigurðssonar. Hann þekkir þó gæði hans og er fullviss um að hann reynist liðinu vel.

Gylfi hefur ekki leikið fótbolta síðan vorið 2021. Það sumar var hann handtekinn af lögreglunni í Manchester sakaður um kynferðisbrot gegn ólögráða einstaklingi. Hann var á meðal nokkurra landsliðsmanna Íslands sem voru það sumar sakaðir um brot gegn konum. Eftir handtökuna lék hann ekki aftur fyrir þáverandi félag sitt Everton.

Litlar opinberar upplýsingar er að finna um mál Gylfa en hann var í farbanni um hríð og mátti á þeim tíma hvorki æfa með félagi sínu né fara úr landi. Kæran gegn Gylfa var látin niður falla fyrr á þessu ári og var honum þá frjálst að hefja feril sinn á ný og komast frá Bretlandi.

Hann samdi við Lyngby í vikunni og mun því endurvekja feril sinn. Freyr er afar ánægður að hafa fengið Gylfa Þór til danska liðsins en vill stilla væntingum í hóf vegna langrar pásu Gylfa frá fótboltavellinum.

„Ég vil ekki setja neinar rosalegar væntingar á hann Gylfa annað en að við vitum hversu stórkostlegur fótboltamaður hann er. Hann hefur ekki gleymt því,“ sagði Freyr og hélt áfram.

„Hann þarf að fá að komast í takt aftur inn á vellinum, komast í leikform. Þegar við erum komnir þangað mun hann veita okkur gríðarleg gæði. Leikskilningur á allra hæsta stigi, hann getur klárað leiki upp á einsdæmi.“

„Það sem mér hefur alltaf fundist helsti styrkleiki Gylfa er að hann gerir leikmennina í kringum sig betri. Það er eiginleiki sem ekki allir hafa. Hann nær því besta út úr liðsfélögum sínum og það mun lyfta liðinu gríðarlega.“

„Það er mjög erfitt að finna leikmenn sem geta klárað leiki upp á einsdæmi en það getur hann svo sannarlega. Það er ekki sú pressa sem ég set á hann en ég veit að það er þarna og það kemur á einhverjum tímapunkti,“ sagði Freyr að endingu.


Tengdar fréttir

Gylfi Þór orðinn leik­maður Lyng­by

Gylfi Þór Sigurðs­son er orðinn leik­maður Lyng­by og skrifar hann undir eins árs samning við fé­lagið. Frá þessu greinir Lyng­by í færslu á sam­fé­lags­miðlum. Marka þessi skref Gylfa endur­komu hans í knatt­spyrnu á at­vinnu­manna­stigi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×