Íslenski boltinn

Segir dómara­stéttina ó­sátta með sýndar­mennsku KSÍ

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Það er alltaf líf og fjör þegar Víkingur og Breiðablik mætast.
Það er alltaf líf og fjör þegar Víkingur og Breiðablik mætast. Vísir/Hulda Margrét

Knattspyrnusamband Íslands fór nýverið af stað með herferð þar sem markmiðið er að þjálfarar, leikmenn og stuðningsfólk beri meiri virðingu fyrir dómurum landsins. Það virðist ekki sem sú herferð sé að ganga nægilega vel.

Á dögunum birtist viðtal á vef Mannlífs við ónefndan dómara sem dæmir í Bestu deild karla á Íslandi. Sá vandar ekki KSÍ, Arnari Gunnlaugssyni - þjálfara toppliði Víkings sem og félögum landsins kveðjurnar.

„Þessu var hent af stað einhverjum tveimur vikum fyrir leikinn fræga í Kópavogi og búnir til einhverjir bolir og eitthvað dót sem allir áttu að hita upp í. Rosa fínt og flott. Svo er ekkert gert í þessu,“ segir áður ónefndur dómari í viðtalinu sem birt var á vef Mannlífs.

Leikurinn sem um er ræðir er viðureign Breiðabliks og Víkings þar sem Arnar ákvað að láta dómara leiksins, Ívar Orra Kristjánsson, heyra það að leik loknum.

„Síðan þá hefur enginn farið í þennan bol,“ bætir téður dómari við. Þar sem Arnari var ekki refsað fyrir athæfi sitt þá telur dómarinn að þarna sé „búið að opna einhverja ormagryfju.“

Í viðalinu er þó tekið fram að flestir þjálfarar í efstu deild karla séu toppmenn sem eru með það eina markmið að vinna knattspyrnuleiki. Þeir eru að sinna vinnu sinni „og partur af því er að láta heyra í sér.“

Þá veltir hann fyrir sér ef varamannabekkur eyðir tæpum tíu mínútum í að úthúða dómara í hverjum leik. Hver er þá fókusinn á leikinn og leikmenn liðsins?

„Ef þú eyðir 30 til 40 prósent af púðrinu í að öskra á dómara þá skilur þú ekki eftir nema 60 til 70 prósent fyrir leikinn.“

Að endingu sagði áður ónefndur dómari að nýliðun í dómarastéttinni mætti vera betri þar sem alltaf sé verið að fjölga leikjum. Þá lét hann lið landsins heyra það fyrir að búa ekki til nýja dómara fyrir knattspyrnuhreyfinguna.

Víkingarnir hans Arnars verða í sviðsljósinu í dag líkt og önnur lið Bestu deildar karla þegar 22. umferð fer fram í heild sinni klukkan 14.00. Víkingar geta tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn þó svo enn séu fimm umferðir eftir í úrslitakeppninni.

Allir leikir hefjast klukkan 14.00.

  • Breiðablik - FH (Stöð 2 Sport)
  • Stjarnan - Keflavík (Stöð 2 Sport 2)
  • Fram - Víkingur (Stöð 2 Sport 5)
  • Fylkir - KA (Besta deildin)
  • ÍBV - KR (Besta deildin 2)
  • Valur - HK (Besta deildin 3)



Fleiri fréttir

Sjá meira


×