Fótbolti

Bergþóra gengin til liðs við Örebro

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Bergþóra Sól 'asmundsdóttir er gengin í raðir Örebro.
Bergþóra Sól 'asmundsdóttir er gengin í raðir Örebro. Örebro

Knattspyrnukonan Bergþóra Sól Ásmunds­dótt­ir er gengin í raðir sænska úrvalsdeildarfélagsins Örebro frá Breiðabliki.

Örebro greinir frá vistaskiptunum á samfélagsmiðlum sínum. Bergþóra er fædd árið 2003 og hefur leikið með Breiðabliki allan sinn feril.

„Við erum virkilega ánægð með að hafa náð að krækja í Beggu á síðustu mínútum gluggadagsins,“ segir á heimasíðu Örebro.

Bergþóra hefur leikið 39 leiki fyrir Breiðablik í efstu deild á Íslandi og skorað í þeim eitt mark. Hún lék 17 leiki með liðinu í Bestu-deild kvenna í sumar. Þá á hún einnig að baki 13 leiki fyrir yngri landslið Íslands áður en hún lék með U23 ára landsliðinu fyrr á þessu ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×