Skoðun

Illa í­grunduð á­form Ás­mundar

Þorsteinn Kristjánsson skrifar

Tillaga Ásmundar Einars Daðasonar, mennta- og barnamálaráðherra, um sameiningu Menntaskólans á Akureyri og Verkmenntaskólans á Akureyri er vanhugsuð aðför að mennta- og samfélagsmálum á landsbyggðinni. Einsleitara skólaumhverfi er engum til hagsbóta, sækjum frekar fram og fögnum fjölbreytileikanum.

Skilur skólasamfélagið eftir í rúst

Til að bregðast við óskum um fjölgun nemenda í verk- og starfsnámi er gert ráð fyrir því í fjármálaáætlun ríkisins að auka framlög til framhaldsskólanna um 1 milljarð króna á næstu 4 árum. Fyrstu viðbrögð Ásmundar (þingmaður Reykvíkinga, ættaður úr Dölunum) er að leggja til atlögu við rótgróið menntasamfélag norður á Akureyri. Ætlunin er að leggja niður tvær rótgrónar mennta- og menningarstofnanir og „spara“ allt að 400 milljónir króna (lesist nýta til annarra verkefna annarsstaðar á landinu). Ráðherrann gefur skólameisturum og einum verkefnisstjóra heila tvo mánuði til að móta nýja menntastofnun í stað MA og VMA, mennta- og menningarstofnana á Akureyri sem tók þúsundir einstaklinga, nemendur, kennara og aðra velunnara skólanna marga áratugi að móta og byggja upp.

Með því að gefa svo stuttan tíma til að byggja upp úr þeim rústum sem ráðherra virðist vilja skilja eftir sig í skólasamfélaginu hér fyrir norðan má öllum ljóst vera að hlutskipti skólameistaranna er ekki öfundsvert - þeim eru í raun gefnir tveir kostir af ráðherra: „annað hvort vinnur þú með mér að þessu verkefni og átt þá von um að halda starfinu þínu eða þá þú getur átt þig.“

Í sérstöðunni blómstrar fjölbreytnin

Það eru ómæld verðmæti fólgin í því fyrir samfélagið á Akureyri og næsta nágrenni að nemendur geti valið á milli tveggja stórgóðra framhaldsskóla sem eru svo ólíkir sem raun ber vitni. Að fórna þessum verðmætum fyrir óraunhæfar hugmyndir um fjárhagslegan ávinning og innihaldslausa frasann um betri, öflugri og „fjölbreyttari“ skóla er hvorki boðleg né sæmandi framganga skynsömu fólki. Eða hver eiga hin svokölluðu samlegðaráhrif nákvæmlega að verða?

Við megum því ekki við þeim slæmu samfélagslegu áhrifum sem sameining MA og VMA myndi óneitanlega hafa í för með sér. Einsleitara skólaumhverfi grefur undan þeirri sérstöðu sem skólarnir vissulega hafa, hvor á sinn einstaka hátt. Það þarf ekki að fjölyrða um þann sess sem skólarnir skipa í blómlegu lífi Akureyrarbæjar þar sem nemar hvaðanæva að sækja sér menntun og auðga mannlífið til frambúðar. Í þeirri flóru skína einstaklingar skærar og flytja með sér nýja strauma sem deyja út í flatneskju stærri skóla. Sérstöðunni og smæðinni fylgir fjölbreytnin og í því eru fólgin ómæld verðmæti.

Hvar eru kjörnu fulltrúarnir?

Hver er afstaða kjörinna fulltrúa okkar á Alþingi og sveitarstjórnum? Hvar er fyrsti þingmaður Norðausturkjördæmis, samflokksmaður ráðherrans sem leggur fram þessa sameiningartillögu? Ummæli hennar hingað til fela ekki í sér neina afstöðu til málsins. Ætlar þú að leyfa ráðherranum þínum að valta yfir kjördæmið þitt? Hvar eru oddvitar hinna flokkanna sem eru í ríkisstjórn? Hver er afstaða bæjarstjórnar Akureyrar? Ætla iðnfyrirtæki á Akureyri og Norðurlandi að láta þessa aðför að verknámi ganga yfir sig án þess að við þau sé nokkurt samráð um þær breytingar sem fyrirhugaðar eru á framtíðar starfskröftum og þekkingu iðnaðar svæðisins?

Hver ætlar að standa vörð um þessar mikilvægu menntastofnanir? Ég auglýsi hér með eftir einhverjum sem er ekki sama.

Látum í okkur heyra

Þessi óútfærða og illa ígrundaða tillaga ráðherra er eins og blaut tuska í andlit allra þeirra sem á undanförnu áratugum hafa lagt þessum mikilvægu menntastofnunum lið í sífelldu uppbyggingarstarfi sínu. Hvers vegna ekki að sækja fram og efla skólana, frekar en að grafa undan þeim með þessum hætti?

Kæru nemendur í MA – núverandi og verðandi – fyrrum nemendur standa með ykkur. Og MA-ingar, hvar sem þið eruð í heiminum; rísið upp og talið gegn þessum vanhugsuðu og skaðlegu áformum Ásmundar Einars Daðasonar. Nemendafélag skólans á ekki að standa eitt og óstutt í baráttunni.

Höfundur er stúdent frá MA


Tengdar fréttir

Mót­mæli nem­enda snúist fyrst og fremst um skóla­menningu

Skólameistari Menntaskólans á Akureyri segir mótmæli nemenda við mögulegri sameiningu skólans við Verkmenntaskólann á Akureyri fyrst og fremst byggð á skólamenningu. Sameining skólanna myndi auka gæði bóknáms á Akureyri og efla þá.

Sjokkeraðir nem­endur MA boða til mót­mæla á Ráð­hús­torgi

Nemendafélag Menntaskólans á Akureyri hefur boðað til mótmæla á Ráðhústorgi bæjarins í dag vegna mögulegrar sameiningar skólans og Verkmenntaskólans á Akureyri. Forseti nemendafélags MA segir nemendur í sjokki eftir fund með ráðherra í gær og óttast að rótgrónar hefðir innans skólans glatist með sameiningu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×