Innlent

Segja eitt dýrið hafa verið skotið tvisvar

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Svo virðist sem tveir skutlar hafi verið notaðir á dýrið en samtökin segja að meðfylgjandi myndir hafi verið teknar af liðsmönnum samtakanna í hvalstöðinni snemma í morgun. 
Svo virðist sem tveir skutlar hafi verið notaðir á dýrið en samtökin segja að meðfylgjandi myndir hafi verið teknar af liðsmönnum samtakanna í hvalstöðinni snemma í morgun.  Paul Watson Foundation

Þrjár langreyðar voru skotnar í fyrsta túr hvalskipanna Hvals 8 og 9 sem héldu til veiða á miðvikudag eftir að mótmælastöðu tveggja kvenna sem höfðu hlekkjað sig við hvalbátana var hætt.

Tvö dýr höfðu verið drepin í gærdag en Morgunblaðið greinir frá því að Hvalur 9 hafi náð öðru dýri í gærkvöldi. Þar er haft eftir stöðvarstjóranum í hvalstöðinni að veiðarnar hafi gengið nokkuð vel þrátt fyrir aðstæður en blindaþoka og leiðindaveður var á svæðinu. Hann segir ennfremur ólíklegt að skipin fari aftur út á næstunni vegna óhagstæðra veðurskilyrða.

Paul Watson Foundation

Dýraverndunarsamtökin Paul Watson Foundation sendu fréttastofu myndir af því þegar hvalirnir voru dregnir á land í hvalstöðinni í Hvalfirði snemma í morgun. Imogen Sawyer, talskona samtakanna segir að á myndunum megi augljóslega sjá að eitt dýrið hið minnsta hafi verið skotið tvisvar sinnum með hvalskutli. Einn skutullinn virðist hafa hafnað fyrir ofan kjaft dýrsins og hinn í síðu þess.

Paul Watson Foundation

Samtökin segja þetta þetta augljóst brot á dýraverndarlögunum en í nýrri reglugerð um veiðar á langreyðum sem Svandís Svavarsdóttir setti áður en veiðar voru heimilaðar að nýju segir að ávallt skuli stefnt að því að dýr aflífist samstundis. Að mati samtakanna er ómögulegt að það hafi tekist í þessu tilfelli þar sem það taki rúmar 120 sekúndur að hlaða skutulbyssuna og skjóta á ný.

Þetta vinnulag samræmist ekki íslenskum lögum um velferð dýra að mati samtakanna.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×