Skoðun

Versti dagur lífs míns

Sigríður Björk Þormar skrifar

Versti dagurinn okkur er alltaf settur í samhengi við það sem okkur finnst erfitt þá stundina en það eru sumir sem upplifa versta dag lífs þíns og það er sannarlega þegar þau fá fréttir um að náinn ættingi og hvað þá barnið þeirra hafi tekið eigið líf.

Í dag er Alþjóðlegur dagur sjálfsvígsforvarna og sest ég því niður og skrifa þennan pistil. Ég skrifa hann því ég er óttaslegin um börnin okkar. Sjálfsvíg barna og ungs fólks þá sérstaklega ungra drengja eru hæst á Íslandi af öllum norðurlöndunum þrátt fyrir að eitthvað hafi dregið úr þeim síðastliðin ár samkvæmt samnorrænni rannsókn er Högni Óskarsson geðlæknir birti niðurstöður úr á læknaþingi nú í janúar.

Í almennu forvarnasamhengi beinum við aðgerðum okkar að inngripum fyrir skaðandi aðstæður því það er það sem orðið for-vörn felur í sér. Við fræðum krakkana okkar um hvað gera skuli við smokkinn, hvernig honum skuli hæglega komið fyrir með öruggum máta áður en samfarir eiga sér stað. En við erum ekki nógu dugleg við að fræða börnin okkar um sjálfsvígshugsanir eða kenna þeim bjargráð við mikilli vanlíðan eins og streitustjórnun fyrr en aðstæður eru orðnar mjög alvarlegar. Við þurfum að vera öflugri í því að efla sjálfsmynd ungs fólks markvisst innan skólakerfisins og draga úr áhættuþáttum í því umhverfi eins og óhóflegri notkun samfélagsmiðla sem sýnt hefur verið fram á að valda almennri vanlíðan. Góð samvinna og skilningur ólíkra hagsmunaaðila um að láta sig geðheilsu og vellíðan barnanna okkar varða er nauðsynlegri nú en nokkurn tíma áður. Píeta samtökin eru öflug samtök og verða sífellt sterkari sem samfélagslegt afl í baráttunni gegn sjálfsvígum. Stefna stjórnar Píeta samtakanna er að efla enn frekar forvarnastarf samtakanna og ná enn betur til samfélagsins í heild, sérstaklega til þeirra sem vinna með börnum. Samvinna milli félagsmiðstöðvanna, skólakerfisins, heilsugæslunnar og íþróttafélaganna með fræðslu til barnanna okkar um kvíða, depurð og erfiðar hugsanir sem upp geta komið með eða án tengsla við lífsviðburði er lífsnauðsynlegt inngrip. Það krefst viðhorfsbreytingar bæði hjá kerfi og foreldrum, fjármagns, þjálfunar starfsfólks og þróun inngripa. Við þurfum að grípa börnin okkar áður en þau falla. Jafnframt þarf að styrkja vinnu með syrgjendur, þá sérstaklega foreldra barna og systkina barna er tekið hafa eigið líf því þau er tvisvar til þrisvar sinnum líklegra til að taka eigið líf en aðrir. Algengt er að fólk og jafnvel fagfólk sé óttaslegið við að ræða sjálfsvígshugsanir eða tala um sjálfsvíg við ungt fólk því heyrst hefur að slíkt geti aukið hættuna á sjálfsvígum. Það er ekki rétt heldur hefur verið sýnt fram á að opin umræða geti dregið úr líkum á sjálfsvígum.

Í dag eru Pieta samtökin með tónleika á KEX hostel fram koma Gugusar, Kaktus Einarsson, Kvikindi og Systur. Það er ókeypis aðgangur en Píeta samtökin taka á móti frjálsum framlögum við hurð.

Höfundur er formaður stjórnar Pietasamtakanna og doktor í læknavísindum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×