Innlent

„Þetta er stórt og ljótt mál og þeir eiga að taka á þessu“

Helena Rós Sturludóttir skrifar
Vilhjálmur Hjálmarsson, formaður ADHD samtakanna, segir nauðsynlegt að stjórnvöld bregðist tafarlaust við og breyti núgildandi lögum og setji reglugerð.
Vilhjálmur Hjálmarsson, formaður ADHD samtakanna, segir nauðsynlegt að stjórnvöld bregðist tafarlaust við og breyti núgildandi lögum og setji reglugerð. Vísir/Arnar

ADHD samtökin hafa skorað á stjórnvöld að setja á reglugerð tafarlaust til að koma í veg fyrir að fólk sem notar lyf vegna ADHD verði beitt viðurlögum eða sektum af hálfu lögreglu í umferðinni. Formaður samtakanna segir núgildandi lög gölluð.

Málið snýr að umferðarlögum sem sett voru árið 2019 og tóku í gildi 2020 og hafa verið mikið til umræðu undanfarna daga eftir að hjón í Hveragerði voru handtekin í síðustu viku fyrir fíkniefnaakstur eftir að amfetamín mældist í blóði þeirra vegna ADHD lyfsins Elvanse sem þau taka bæði. 

Galli í lögum sem þurfi að breyta

ADHD samtökin hafa nú skorað á stjórnvöld að breyta lögunum og setja reglugerð og segir formaður samtakanna galla í lögunum sem tafarlaust þurfi að breyta. Aðeins ein undanþága sé nú til staðar, læknisvottorð. 

„Ef maður er ekki með það þá er maður sjálfkrafa handtekinn og farið með mann í blóðsýnatöku og síðan fer málið í kæruferli. Af því fólk er ekki með bréfið þá er það sekt um að keyra undir áhrifum ólöglegra fíkniefna og það sem meira er þá er ekki tekið við svona vottorðum eftir á,“ segir Vilhjálmur og bendir á að vandamálið sé til komið þar sem engin reglugerð hafi verið gerð. 

Tillögur að breytingum í greinargerð

Án reglugerðar þurfi lögreglumenn að fara eftir fyrirmælum ríkissaksóknara frá 2020. „Bókstaflega og einhver lítill hópur lögreglumanna er að framkvæma þetta á frekar skrítinn hátt. Ég man ekki til þess að hafa heyrt nokkurn segja að lögreglan hafi spurt hvort þetta vottorð sé fyrir hendi heldur farið beint í að segja að þú sért að aka undir áhrifum ólöglegra fíkniefna,“ útskýrir Vilhjálmur jafnframt. 

Í greinargerð sem samtökin sendu á stjórnvöld í morgun koma fram tillögur að breytingum og vonast Vilhjálmur til að málið verði unnið hratt og vel. „Ég ætla rétt að vona það, þetta er stórt og ljótt mál og þeir eiga að taka á þessu einn, tveir og tíu.“ Breytingarnar sem samtökin leggi til séu ekki stórvægilegar hins vegar þurfi að setja reglugerð við lögin sem allra fyrst til að koma í veg fyrir viðurlög og sektir. 


Tengdar fréttir

Út­skýrir vinnu­brögð lög­reglunnar í hand­tökunni í Hvera­gerði

Vinnubrögð lögreglu hafa verið harðlega gagnrýnd vegna handtöku á fólki í Hveragerði af formanni ADHD-samtakanna, sem segir málið það ljótasta sem hann hafi heyrt um. Handtakan átti sér stað í fyrrakvöld vegna fíkniefnaaksturs þar sem að amfetamín fannst í blóði þeirra vegna ADHD lyfsins Elvanse. Aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi tjáði sig um vinnubrögð lögreglu í kvöldfréttum Stöðvar 2.

„Eins og að segja við mann­eskju sem notar gler­augu að taka gler­augnafrí“

Konur með ADHD segja ófáanlegt lyf hafa breytt lífi þeirra og gefa lítið fyrir ráðleggingar forstjóra Lyfjastofnunar um að fólk taki sér lyfjafrí. Á föstudaginn greindum við frá því að ADHD lyfið Elvanse í styrkleika þrjátíu og fimmtíu milligrömm væri ófáanlegt og það sama ætti við um samheitalyfið. Þrátt fyrir að skorturinn væri alþjóðlegur hafi hann komið fram fyrr hér á landi en annars staðar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×