Innlent

Mikill elds­matur á fata­lagernum þar sem eldurinn kom upp

Vésteinn Örn Pétursson og Margrét Björk Jónsdóttir skrifa
Af vettvangi í Kópavogi í kvöld.
Af vettvangi í Kópavogi í kvöld. Vísir/Margrét Björk

Slökkvilið telur að eldurinn sem kom upp í Urðarhvarfi í Kópavogi hafi átt upptök sín í lager- og verslunarhúsnæði Zo-On. Búið er að slökkva eldinn að mestu en hann hefur blossað nokkrum sinnum upp að nýju, þar sem mikill eldsmatur er inni á lagernum.

„Við teljum okkur vera búna að slökkva eldinn, en það er alltaf að gossa upp aftur, því þetta er fatalager með flíspeysum og þvílíku. Þannig að við erum að vinna okkur aðeins inn og hreinsa glóð,“ segir Birgir Finnsson, varaslökkviliðsstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. 

Þá hafi reykur borist yfir í húsnæði veitingastaðarins Pure Deli, sem er í sama húsi. Ekkert liggi fyrir um eldsupptök að svo stöddu og ekki óttast um að fólk sé í húsinu.

Birgir Finnsson varaslökkviliðsstjóri. Myndin er úr safni.Vísir/Steingrímur Dúi

„Það eiga allir að vera komnir út og íbúðirnar sem eru hérna við hliðina á voru rýmdar,“ segir Birgir. 

Hann segir ekkert liggja fyrir um hversu lengi slökkvilið kemur til með að starfa á vettvangi.

„Við erum ekkert að haska okkur alveg núna, við erum búnir að slökkva en þurfum að dunda okkur áfram og tína hér út dót. Það er einhver vinna eftir en ég veit ekki hversu lengi.“

Allt slökkviliðsfólk á vakt á höfuðborgarsvæðinu hafi verið kallað út, auk einnar frívaktar. 

Allt tiltækt slökkvilið var kallað út vegna eldsins í kvöld. Vísir/Margrét Björk

Fólk hafi átt fótum sínum fjör að launa

Í samtali við fréttamann á vettvangi segir Ingibjörg Þorvaldsdóttir, eigandi Pure Deli, að litlu hafi munað að stórslys hefði orðið. Viðskiptavinir hafi setið inni á staðnum þegar veggurinn hafi tekið að titra og fólk hreinlega átt fótum sínum fjör að launa.

Það sé fyrir öllu að enginn hafi slasast, en sorglegt og mikið áfall að sjá staðinn fara, eftir að hafa byggt hann upp á síðustu sex árum. Ljóst sé að tjónið sé mikið. 

Hér að neðan má sjá myndband frá vettvangi, þegar slökkvistarfi var að mestu lokið. Á því má sjá að tjónið inni á lagernum er talsvert.


Tengdar fréttir

Mikill elds­matur á fata­lagernum þar sem eldurinn kom upp

Slökkvilið telur að eldurinn sem kom upp í Urðarhvarfi í Kópavogi hafi átt upptök sín í lager- og verslunarhúsnæði Zo-On. Búið er að slökkva eldinn að mestu en hann hefur blossað nokkrum sinnum upp að nýju, þar sem mikill eldsmatur er inni á lagernum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×