Lífið

Farsæll ferill hófst þegar hann hætti að drekka

Stefán Árni Pálsson skrifar
Rúnar Þór Pétursson verður sjötugur 21.sept.
Rúnar Þór Pétursson verður sjötugur 21.sept.

Tónlistarmaðurinn Rúnar Þór Pétursson fagnar 70 ára afmæli sínu síðar í þessum mánuði en í tilefni af því tónleika í Bæjarbíói í Hafnarfirði 22. september, daginn eftir afmælið sitt. Sindri Sindrason hitti Rúnar í Íslandi í dag á Stöð 2 í gærkvöldi.

Ferill hans spannar fjörutíu ár en eins og fram kom í þætti gærkvöldsins hefur lífið ekki alltaf verið dans á rós. Hann byrjaði ekki að gefa út tónlist fyrr en hann var orðinn þrítugur.

„Ég er Ísfirðingur og er þar til tvítugs þegar ég flyt í bæinn ásamt þremur félögum mínum. Þá var ég bara að vinna aðra vinnu og var stundum trommari í örðum böndum og var stundum að stofna einhver bönd. Svo hætti ég að drekka, ég drakk svolítið mikið á þessum tíma og var í raun frekar blautur,“ segir Rúnar og heldur áfram.

„Á þessum árum átti ég sextíu þúsund krónur og bókaði mér stúdíótíma og sagði við upptökumanninn, þú stoppar þegar við erum komnir í fimmtíu þúsund. Fyrsta platan er í raun bara demo. Þarna fékk ég Bubba Morthens til að syngja með mér og hann gerði það í fyrsta sinn, að syngja með öðrum.“

Eftir það gaf hann í raun út eina plötu á ári og spilaði hverja einustu helgi á mismunandi viðburðum.

„Ég drakk mjög mikið á þessum tíma, frá kannski átján ára til þrjátíu. Og þá var maður alltaf að fara gera hluti. Ef þú hefðir hitt mig þá þá hefði ég sagt að ég væri að fara gefa út plötu eða ég er að fara gera hitt og þetta. En þegar maður hættir að drekka þá fer maður að segja, ég var að gera hlutinn. Það er það sem skeður.“

Hér að neðan má sjá brot úr Íslandi í dag í gærkvöldi en hægt er að sjá innslagið í heild sinni inni á Stöð 2+.

Klippa: Farsæll ferill hófst þegar hann hætti að drekka






Fleiri fréttir

Sjá meira


×