Sport

Hinn 78 ára Þor­­­­­­­geir sýndi snilldar­takta í beinni: Sló út meistara og vann riðilinn

Aron Guðmundsson skrifar
Þorgeir Guðmundsson tryggði sér sæti í 8-manna úrslitum Úrvalsdeildarinnar í pílukasti í gærkvöldi og sýndu um leið magnaða takta.
Þorgeir Guðmundsson tryggði sér sæti í 8-manna úrslitum Úrvalsdeildarinnar í pílukasti í gærkvöldi og sýndu um leið magnaða takta. Vísir/Skjáskot

Það má með sanni segja að Þor­geir Guð­munds­son, 78 ára gamall pílu­kastari og KR goð­sögn, hafi átt sviðið í gær í Úr­vals­deildinni í pílu­kasti þegar að keppni í C-riðli fór fram í beinni út­sendingu á Stöð 2 Sport.

Þor­geir, sem á að baki nokkra Ís­lands­meistara­titla á sínum ferli í pílu­kasti, sýndi snilldar­takta og tryggði sér sæti í 8-manna úr­slitum Úr­vals­deildarinnar og sló um leið ný­krýnda Ís­lands­meistarann í 301 og þrefaldan Íslandsmeistara í 501, Matthías Örn Frið­riks­son, úr leik.

Til­þrif kvöldsins átti Þor­geir í viður­eign sinni gegn Kittu Einars­dóttir í 101 út­skoti þar sem að hann hitti 20, þre­faldan 19 og tvö­faldan tólf og kláraði þar með fimm­tán pílna legg. Til­þrifin má sjá hér fyrir neðan: 

Klippa: Hinn 78 ára gamli Þorgeir átti tilþrif kvöldsins í beinni útsendingu

Þorgeir sýndi einstaka takta í öllum sínum leikjum þar sem hann var með þrjú stórglæsileg útskot fyrir 116, 101 og 127 öll gegn sitthvorum andstæðingnum. Eftir að hafa lent 2-0 undir gegn Atla Kolbeini Atlasyni í öðrum leik kvöldsins hrökk díselvélin í gang og sigldi Þorgeir sigrinum í höfn í lokaleik kvöldsins gegn Matthías Erni 3-1.

Fjórða kvöld Úrvalsdeildarinnar verður 11.október en þá fer fram E-riðill sem er sannkallaður dauðariðill. Í riðlinum mætast Karl Helgi Jónsson úr PFR, Hallgrímur Egilsson úr PFR, Óskar Jónasson úr Þór og Lukasz Knapik úr PFH.

Goðsögn hjá KR

Þor­geir var á sínum tíma nokkrum sinnum meistari með knatt­spyrnu­liði KR og í við­tali sem tekið var við hann árið 2020 í sam­komu­banni mátti sjá að­stöðuna sem hann hefur komið upp í tengslum við pílu­kastið í bíl­skúrnum hjá sér.

Þá fór hann einnig yfir þróunina í pílu­kasti hér á landi. Ó­hætt er að mæla með á­horfi á þetta skemmti­lega inn­slag svona í til­efni að til­þrifum Þor­geirs í gær­kvöldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×