Innlent

„Það er ekki enda­laust til, hátt­virtur þing­maður“

Bjarki Sigurðsson skrifar
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar. Vísir/Vilhelm

Formaður Samfylkingarinnar segir ríkisstjórnina setja velferðina á ís með nýju fjárlagafrumvarpi. Fjármálaráðherra segir hana tala með óábyrgum hætti um opinber fjármál. 

Á þingi í dag mælti fjármálaráðherra fyrir fjárlagafrumvarpi sínu. Frumvarpið fyrir næsta ár var kynnt opinberlega á þriðjudag en meðal þess sem kom þar fram var að fleiri fjölskyldur fengi barnabætur, ríkari áhersla væri lögð á aðhald í rekstri og hækkun á áfengis- og tóbaksgjöldum.

Hófst þingfundurinn á því að fjármálaráðherra kynnti helstu punkta frumvarpsins. Segir hann verðbólguna vera ástand sem snertir alla í landinu.

„Markmiðið liggur því augum uppi. Við þurfum að vinna okkur í átt að meiri stöðugleika að nýju og með skynsamlegri hagstjórn er hægt að ná því markmiði,“ segir Bjarni. 

Þingmenn úr hverjum þingflokki höfðu raðað sér á mælendaskrá áður en umræðurnar hófust og var Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, sú fyrsta til að tjá sig um frumvarpið. Sagði hún velferðarkerfið vera vannært.

„Það er til einskis að setja velferðina á ís til að hagræða í rekstri. Ríkið fær þetta bara í fangið í hærri launakröfum og verðlagshækkunum. Eftir situr hinn almenni launamaður með verri velferð og illa rekið ríki,“ segir Kristrún.

Bjarni sagði málflutning Kristrúnar ekki vera sannan.

„Við förum hins vegar fram á það að ríkissjóður finni leiðir til þess að gera betur, til þess að nýta fjármagn betur, á hverju ári. Líkt og heimilin eru að gera og allt atvinnulífið á Íslandi. Það er gert lítið úr því að hér sé komið fram með sautján milljarða hagræðingaaðgerðir. Þetta er jafngildi þess að segja sautján milljarðar skipta bara engu máli í stóra samhengi hlutanna. Þetta er að tala með óábyrgum hætti um opinber fjármál. Það er ekki endalaust til háttvirtur þingmaður,“ sagði Bjarni í andsvörum sínum. 


Tengdar fréttir

„Við þurfum að fara fram á að­hald í ríkis­rekstrinum“

Fjármála- og efnahagsráðherra segir það helsta í fjárlagafrumvarpinu vera sterka stöðu ríkissjóðs. Afkoma ríkissjóðs í fyrra og í ár hafi verið miklum mun betri en gert hafði verið ráð fyrir og að væntingar fyrir næsta ár séu góðar. Afkoma ríkissjóðs haldi áfram að batna.

Ekki verið að „rifa seglin nærri nógu mikið“ til að ná niður verð­bólgunni

Þrátt fyrir að verðbólguvæntingar á skuldabréfamarkaði hafi lækkað lítillega í gær eftir framlagningu frumvarps til fjárlaga þá hefði aðhaldið sem þar birtist þurft að vera meira til að ná böndum á þenslu og þrálátri verðbólgu, að sögn skuldabréfafjárfesta. Mikil hækkun á ávöxtunarkröfu ríkisbréfa síðustu vikur er meðal annars sögð mega rekja til vantrúar markaðsaðila í garð ríkisfjármálanna, einkum eftir harða gagnrýni fjármálaráðherra á Seðlabankann fyrir að beina ábyrgðinni á verðstöðugleika á aðra en bankann sjálfan.

Munu ekkert gefa eftir í kjara­samnings­við­ræðum

Forseti ASÍ segir nýtt fjárlagafrumvarp ekki gefa mikið inn í kjarasamningsviðræður. ASÍ hefði viljað sjá meira gert fyrir heimilin í landinu. Hann segir mögulega hörku framundan í viðræðum. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×