Innlent

Stöðva veiðar um borð í Hval 8 tímabundið

Atli Ísleifsson skrifar
Brotin við veiðarnar eru talin alvarleg að mati Matvælastofnunar.
Brotin við veiðarnar eru talin alvarleg að mati Matvælastofnunar. Egill Aðalsteinsson

Matvælastofnun hefur stöðvað tímabundið veiðar Hvals 8 vegna alvarlegra brota á velferð dýra við veiðar á langreyði.

Þetta kemur fram á vef Matvælastofnunar. Þar segir að stöðvunin gildi þar til úrbætur hafi farið fram og þær sannreyndar af Matvælastofnun og Fiskistofu.

Ennfremur segir að við eftirlit hafi komið í ljós að fyrsta skot Hvals 8 þann 7. september hafi hitt dýrið „utan tilgreinds marksvæðis“ með þeim afleiðingum að dýrið hafi ekki drepist strax. 

„Við slík atvik ber veiðimönnum skv. nýrri reglugerð að skjóta dýrið án tafar aftur. Það var ekki gert fyrr en tæpum hálftíma síðar og drapst hvalurinn einhverjum mínútum eftir það. 

Slík töf telst brot á lögum um velferð dýra og reglugerð um veiðar á langreyðum,“ segir á vef Matvælastofnunar.

Áhafnir Hvals 8 og Hvals 9 hafa veitt ellefu langreyðar hið minnsta frá því að vertíð hófst að nýju eftir að matvælaráðherra heimilaði veiðar á ný með strangari skilyrðum með tilliti til dýraverndar.

Geta takmarkað eða stöðva veiðarnar

Greint var frá því í síðustu viku að tilkynnt hafi verið um tvískotinn hval í veiðiferðum Hvals 8 og 9. 

Var haft eftir Þóru Jóhönnu Jónasdóttur, sérgreinadýralækni hjá Matvælastofnun, að þegar slík atvik kæmu upp þyrfti Hvalur að skila inn atvikaskýrslu eigi síðar en tveimur virkum dögum eftir að veiðiferð lýkur, þar sem lýsa skuli atvikinu og greina mögulegar orsakir þess. Þá yrði atvikið rýnt og mögulegar uppgefnar orsakir þess. 

Matvælastofnun meti svo hvort úrbóta verði krafist áður en veiðar haldi áfram. Þóra benti jafnframt á að almenn ákvæði laga um velferð dýra heimili Matvælastofnun að takmarka eða stöðva starfsemi þegar um alvarleg tilvik eða ítrekuð brot sé að ræða eða ef aðilar sinna ekki tilmælum innan tilgreinds frests.


Tengdar fréttir

Hvalveiðimenn komnir með ellefu langreyðar

Hörkugangur er í hvalveiðunum og veiddust fjórar langreyðar í gær. Áhafnir hvalbátanna beggja hafa núna skotið alls ellefu dýr á sex dögum.

Íslendingar frekar óánægðir með ákvörðun Svandísar

Íslendingar virðast almennt óánægðir með ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra um að leyfa hvalveiðar með nýjum og hertum skilyrðum. Nær 43 prósent landsmanna eru óánægð með ákvörðunina en 35 prósent eru ánægð. Um 23 prósent eru hvorki ánægð né óánægð með ákvörðunina. Þetta kemur fram í niðurstöðum Þjóðarpúls Gallup.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×