Fótbolti

Andri Lucas tryggði Lyngby sigur gegn botnliðinu

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Andri Lucas skoraði eina mark leiksins í sigri Lyngby í dag.
Andri Lucas skoraði eina mark leiksins í sigri Lyngby í dag. Facebooksíða Lyngby

Andri Lucas Guðjohnsen skoraði eina mark leiksins er Íslendingalið Lyngby vann 1-0 sigur gegn botnliði Hvidovre í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Andri Lucas kom Lyngby yfir eftir um klukkutíma leik og reyndist það eina mark leiksins. Með sigrinum stökk Lyngby upp um þrjú sæti, úr því níunda og upp í það sjötta. Liðið er nú með 11 stig eftir átta leiki, níu stigum meira en Hvidovre sem situr á botninum.

Andri Lucas var ekki eini Íslendingurinn sem tók þátt í leiknum því Sævar Atli Magnússon og Kolbeinn Finnsson voru einnig í byrjunarliði gestanna og léku þeir allir allan leikinn undir stjórn Freys Alexanderssonar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×