Innlent

„Þau skilja ekki upp eða niður í þessu“

Jón Þór Stefánsson skrifar
Kristján Loftsson, forstjóri og stærsti eigandi Hvals hf. ber Matvælastofnun þungum sökum og vill meina að stofnunin skilji hvorki upp né niður í málinu sem varð til þess að veiðar í Hvali 8 voru stöðvaðar.
Kristján Loftsson, forstjóri og stærsti eigandi Hvals hf. ber Matvælastofnun þungum sökum og vill meina að stofnunin skilji hvorki upp né niður í málinu sem varð til þess að veiðar í Hvali 8 voru stöðvaðar. Vísir/Egill

Kristján Loftsson, forstjóri og stærsti eigandi Hvals hf. vill meina að engin innan Matvælastofnunar viti neitt um sjósókn. Hann segir ákvörðun stofnunarinnar um að stöðva veiðar í Hval 8 byggja á villandi myndbandi.

Þetta kom fram í viðtali við Kristján í Kastljósi í kvöld. Þar útskýrði hann að atvikið sem olli stöðvuninni hefði byggt á óhappi. Hann segir að um hafi verið að ræða algjörlega ómögulegar aðstæður þar sem ekki hafi verið hægt að gera betur.

Síðan hafi framhaldið verið tekið á myndband, en þar sást þegar hvalur var veiddur.

„Þarna er eftirlitsmaður hjá Fiskistofu, sem er að vinna fyrir MAST, og er að mynda þetta á síma. Hann er að zooma inn og zooma út og zooma inn,“ segir Kristján.

Hann segir mat Matvælastofnunar byggja á umræddu myndbandi, en að það sé villandi vegna „zoomsins“. Hann tekur fram að hvalurinn hafi verið utan skotfæris. Svo virðist ekki vera þegar myndbandið hafi verið „zoomað“ inn, en sjáist þegar ekkert er „zoomað“.

„Þeir byggja sitt mat á þessu zoomi. Þar er allt nálægt skipinu, sem er algjörlega út í hött. Og á þeim grundvelli ákveða þeir að stoppa okkur,“ bætir Kristján.

„Þau skilja ekki upp eða niður í þessu. MAST er þannig stofnun að það er enginn þar innandyra, að mér vitandi, sem hefur neitt vit á sjósókn,“ segir Kristján sem telur að á meðal starfsfólk stofnunarinnar sé almennt skrifstofufólk og dýralæknar. Síðarnefnda hópinn telur hann vera um það bil sjötíu prósent starfsfólks.

Jafnframt heldur Kristján því fram að MAST hafi átt að hafa samráð við Fiskistofu um ákvörðunina, en ekki gert það og þar með brotið eigin reglugerð.

Spurður um hvort hann telji líklegt að banninu verði aflétt, nú þegar einungis tíu dagar séu eftir af veiðitímabilinu, svaraði Kristján: „Ég þori ekki að lesa í heilabúið á þessu fólki. Ég gef mig ekki í það einu sinni.“

Kristján segist ætla að sækja um frekara leyfi til hvalveiða um áramót þegar núverandi leyfi rennur út. Hann segist heldur ekki geta spáð fyrir um hvort nýtt leyfi verði gefið út.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×