Innlent

Skipstjórar þurfa ekki að gefa upp staðsetningu frekar en þeir vilja

Árni Sæberg skrifar
Hvalur 8 og 9 í Reykjavíkurhöfn.
Hvalur 8 og 9 í Reykjavíkurhöfn. Vísir/Vilhelm

Skipstjórar Hvals hf. hafa ekki haft kveikt á sjálfvirku auðkenniskerfi hvalveiðiskipanna tveggja á yfirstandandi vertíð, sem hefur sætt nokkurri gagnrýni. Reglugerð kveður á um að skipstjórum sé í sjálfsvald sett hvort þeir noti búnaðinn.

Í svari Landhelgisgæslunnar við fyrirspurn Vísis um það hvort Hval hf. sé heimilt að gefa ekki upp staðsetningu á skipum sínum, Hval 8 og 9, segir að í reglugerð um Vaktstöð Siglinga og eftirlit með umferð skipa segi að í undantekningartilvikum megi slökkva á sjálfvirku auðkenniskerfi skips ef skipstjóri telji það nauðsynlegt í þágu öryggis eða verndar skipsins. 

Forsvarsmenn Hvals hf. hafi haft samband við Landhelgisgæslu Íslands og tjáð stofnuninni að Hvalur 8 og Hvalur 9 myndu nýta sér umrædda heimild. Landhelgisgæslan hafi gert þá kröfu að skipin sendu stjórnstöð Landhelgisgæslunnar skeyti í gegnum gervihnött á klukkustundar fresti til þess að Landhelgisgæslan væri meðvituð um staðsetningu skipanna.

Eins og ákvæðið er orðað sé það skipstjóra að meta hvort nauðsynlegt sé að beita því.

Aðeins einu sinni nýtt áður

Í svarinu segir að ákvæðinu hafi aðeins einu sinni verið beitt. Þá hafi nýsmíðað skip verið að koma til landsins og þurft að sigla í gegnum hættulegt svæði á leið sinni til landsins og skiptstjóri þess hafi nýtt sér undanþáguna.

Þá segir að ákvörðun Hvals hafi ekki áhrif á öryggi annarra skipa.

„Sjálfvirkur staðsetningarbúnaður er ekki eina tækið til að tryggja öryggi á sjó. Einnig er gerð krafa um mannaða brú og siglingaljós svo eitthvað sé nefnt. Auk þess sem ratsjá skipa kemur að góðum notum.“

Loks segir að það sé ekki hlutverk Landhelgisgæslunnar að framkvæma mat á því hvort nauðsynlegt sé að nýta undanþáguna til þess að tryggja öryggi skipa og það ítrekað að stofnunin veiti ekki undanþágu á umræddu atriði heldur sé það skipstjóri umræddra skipa sem tekur ákvörðun um að nýta sér undanþáguákvæðið sem sett er í reglugerðinni.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×