Enski boltinn

Varar við svefn­venjum Haaland: „Getur verið hættu­legt“

Smári Jökull Jónsson skrifar
Erling Haaland passar að lifa heilsusamlegu lífi utan vallar.
Erling Haaland passar að lifa heilsusamlegu lífi utan vallar. Vísir/Getty

Erling Braut Haaland passar afar vel upp á að ná góðum nætursvefni. Sænskur svefnfræðingur varar þó við sérstakri aðferð sem Haaland og fleiri hafa nýtt sér að undanförnu.

Erling Braut Haaland hefur vitskuld vakið mikla athygli síðustu misserin fyrir öll mörkin sem hann hefur skorað á knattspyrnuvellinum en einnig fyrir fullkomnunaráráttu sína utan vallar.

Meðal annars hafa borist fregnir af mataræði hans og svefnvenjum en nú hefur sænskur svefnfræðingur gagnrýnt nýjustu leið Haaland til að bæta svefn sinn.

Fyrir tveimur vikum greindi Haaland frá því að hann sofi með límband fyrir munninum til að bæta öndunina. Þessi leið hefur verið töluvert til umræðu í netheimum síðustu vikur og myllumerkið #mouthtape verið mikið notað á samfélagsmiðlum.

„Svefn er það mikilvægasta í heimi,“ segir Haaland en sænskur vísindamaður segir aðferðina ekki hættulausa.

„Það er til mikið af rannsóknum sem sýna að þeir sem sofa vel sýni betri frammistöður,“ segir svefnfræðingurinn Christian Benedict en hann er vísindamaður við Háskólann í Uppsölum. 

„Ekki víst að það sé rétta leiðin fyrir alla“

Benedict segir hins vegar að aðeins ein rannsókn sé til um það að sofa með límband fyrir munninum. Þar var gerð rannsókn á fólki sem átti í vandræðum með nætursvefn og sváfu rúmlega helmingur þátttakanda betur í kjölfar þess þau notuðu límband þegar þau sváfu. Benedict er þó efins um aðferðina.

„Það er frábært að aðili eins og Erling Haaland komi fram og segi hversu mikilvægur svefninn sé. Það finnst mér frábært. En að draga þá ályktun að allir muni sofa betur ef þeir setja límband fyrir munninn, það verð ég að setja spurningamerki við.“

Hann segir að aðferðin geti verið hættuleg.

„Ef þú átt við svefnvanda að stríða og átt í öndunarerfiðleikum í svefni þá reynir það mjög á hjarta- og æðakerfið. Ef þú getur ekki andað í gegnum munninn þá getur það leitt til frekari vandræða.“

„Það er gott að anda í gegnum nefið ef mögulegt er. Ef þu´gerir það á hverjum degi í 16 klukkustundir þá kennir þú líkamanum að gera það líka á nóttunni. En að þvinga það fram með límbandi fyrir munninum, það er alls ekki víst að það sé rétta leiðin fyrir alla.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×