Innlent

Telja að raf­magn hefði skipt sköpum í dauðastríði hvals

Árni Sæberg skrifar
Hvalveiðimenn náðu að drepa hvalinn eftir um 25 mínútur frá fyrsta skoti.
Hvalveiðimenn náðu að drepa hvalinn eftir um 25 mínútur frá fyrsta skoti. Skjáskot

Skipstjóri Hvals 8 telur að dauðastríð hvals, sem entist í um 25 mínútur og varð til þess að veiðar skipsins voru tímabundið stöðvaðar, hefði verið mun styttra ef nota mætti rafmagn við hvalveiðar.

Þetta kemur fram í tilkynningu Njáls Gíslasonar skipstjóra um frávik við hvalveiðar Hvals 8 þann 7. september síðastliðinn.

Þar segir að aðalskot hafi farið í haus hvalsins aftan við blástursop ofarlega. Skutull hafi bognað og sprengja sprungið. Hvalurinn hafi rotast og virst dauður og byrjað að sökkva í línu. Spili hafi því verið kúplað inn og byrjað að hífa inn línu, þegar híft hefði verið um stund hafi línan farið að rísa í sjó og ljóst verið að hvalurinn væri ekki dauður. 

„Tók hann á sprett og náðist ekki að kúpla spili út sem olli því að keðjutóg losnuðu og slógust í hlíf á spili og reif. Við þetta stöðvaðist spil og varð ónothæft um stund meðan hlíf var skorin frá. Olli þetta því að umskot tafðist og tími milli skota varð 25 mínútur. Umskot fór hægra megin í brjósthol og í gegn (Dauðaskot) Dauðatími áætlaður 25 mín en bilun í spili var um að kenna.

Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf. lýsti atvikum með sama hætti þegar MAST stöðvaði veiðar Hvals 8 tímabundið. Þá gerði hann einnig að því skóna að eftirlitsmaður MAST hefði tekið atvikið upp með villandi hætti og MAST lagt upptöku hans til grundvallar við mat á frávikinu.

Kristján ræddi atvikið og möguleika á að þróa hvalveiðar með rafmagni í ítarlegu viðtali við Vísi í gær.

Sprengja dugði ekki til

Í tilkynningunni segir að skutull hafi hafnað við hauskúpu hvalsin en skutulsprengja ein og sér ekki dugað til af aflífa dýrið samstundis. 

„Miðað við kynningu á áhrifum rafmagns sem aðferð númer 2 verður að teljast augjóst að 28A straumur og afl sem samsvarar 20 hestöflum hefði aflífað dýrið samstundis. Bann við notkun rafmagns er því megin orsök þess að dýrið drapst ekki samstundis,“ segir skipstjórinn.

Í tilkynningu MAST til Hvals, um að stofnunin hyggðist taka ákvörðun um að stöðva veiðar Hvals 8, er þessari fullyrðingu vísað til föðurhúsanna.

„Matvælastofnun telur að þessar fullyrðingar séu með öllu ósannaðar og ef rétt er staðið að veiðum þarf ekki að koma til þess að dauðastríð langreyða sem veiddar eru sé jafn langt raun bar vitni í umræddri veiðiferð Hvals 8.“

Blés blóði út um blástursopið

Matvælastofnun hefur afhent fjölmiðlum myndskeið sem tekið var upp um borð í Hval 8 þann 7. september. Í því sést dauðastríð hvalsins. Þar má sjá hvernig hvalurinn er skotinn í tvígang með löngu bili á milli. Hér að neðan á sjá styttri útgáfu af myndskeiðinu. 

Þar fyrir neðan er myndskeiðið í heild sinni, heilar 43 mínútur.

Í tengdum skjölum hér að neðan má sjá tilkynningar Hvals og MAST, sem fjölmiðlar hafa fengið afhentar.

Tengd skjöl


Tengdar fréttir

Vinna að því að uppfylla kröfur MAST

Hvalur hf. vinnur að því að uppfylla skilyrði Matvælastofnunar til að Hvalur 8 fái aftur að halda á miðin. Hvalur 9 lagði frá bryggju síðdegis í gær eftir brælu dagana á undan.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×