Innlent

Bein útsending: Er mamma bara með heilabilun þrjá daga í viku?

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ráðstefnan fer fram í Hofi á Akureyri og hefst klukkan 13.
Ráðstefnan fer fram í Hofi á Akureyri og hefst klukkan 13. Vísir/Vilhelm

Alzheimersamtökin blása til ráðstefnu í Hofi á Akureyri í tilefni af alþjóðlegum Alzheimerdegi í dag. Ráðstefnan hefst klukkan 13 og lýkur klukkan 16.

Yfirskriftin ráðstefnunnar er „Er mamma bara með heilabilun þrjá daga í viku?“  Úrræði og þjónusta við fólk með heilabilun á landsvísu. 

Fundarstjóri er Ragnheiður Ríkharðsdóttir formaður Alzheimersamtakanna.

Dagskrá:

  • „Seiglan, bylting í þjónustu við einstaklinga með heilabilun“? - Guðlaugur Eyjólfsson framkvæmdastjóra Alzheimersamtakanna.
  • Að sjá tækifærin í nærumhverfinu - Laufey Jónsdóttir Jónsdóttir forstöðumaður stuðnings og stoðþjónustu, tengill Alzheimersamtakanna á Akranesi.
  • Austrið er rautt og heilabilun - Arnþór Helgason, vinátturáðherra.
  • Hvað segiði, eigum við að fara á Greifann? - Dagný Björg Gunnarsdóttir og Hera Kristín Óðinsdóttir, aðstandendur.
  • Týnd í umskiptum og samskiptum þegar maki hverfur vegna heilabilunar og flytur á langtímaumönnunarstofnun - Olga Ásrún Stefánsdóttir, iðjuþjálfi og fjölskylduráðgjafi. og fjölskyldum.
  • Ef ég gleymi. Kynning á leiknu fræðsluefni um heilabilun - Sigrún Waage, leikkona og sviðslistakennari
  • Minnismóttaka SAk, reynsla undanfarinna ára - Arna Rún Óskarsdóttir, öldurnarlæknir SAk.
  • Er mamma bara með heilabilun þrisvar í viku? - Bergþóra Guðmundsdóttir, Aðstandandi Alzheimer sjúklings
  • Nám í ráðgjöf í málefnum fólks með heilabilun - Dr. Kristín Þórarinsdóttir, er hjúkrunarfræðingur og dósent við Heilbrigðis- viðskipta og raunvísindadeild Háskólans á Akureyri.

Deildu reynslu sinni

Vinkonurnar Ragnheiður Kristín Karlsdóttir og Gunnhildur Skaftadóttir kynntust í gegnum Alzheimersamtökin fyrir rúmum áratug eftir að eiginmenn þeirra greindust með sjúkdóminn. Þær sögðu sögu sína í baráttu við sjúkdóminn í Íslandi í dag í fyrrasumar.

Báðir höfðu þeir þurft að bíða í mörg ár frá því að fyrstu einkenni komu þar til þeir voru greindir, sem fékk mjög á fjölskyldur þeirra.


Tengdar fréttir

Lyfið geti seinkað fram­þróun Alz­heimer um þriðjung

Öldrunarlæknir segir nýtt líftæknilyf við Alzheimer vendipunkt. Það muni ekki allir geta fengið lyfið til að byrja sem þurfi á því að halda en lyfið getur seinkað framþróun sjúkdómsins um þriðjung. 

Katrín hleypur fyrir Alzheimer-samtökin

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ætlar að hlaupa tíu kílómetra í Reykjavíkurmaraþoninu og hleypur hún fyrir Alzheimer-samtökin. Innblásturinn segir Katrín sækja til Magnúsar Karls Magnússonar og Ellýjar Katrínar Guðmundsdóttur, sem hefi opnað augu margra fyrir alzheimer-sjúkdómnum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×