Lífið

Örlagarík skilaboð: „Besta ákvörðun lífs míns“

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Fyrstu samskipti Maríu Birtu og Ella áttu sér stað fyrir tíu árum síðan.
Fyrstu samskipti Maríu Birtu og Ella áttu sér stað fyrir tíu árum síðan. María Birta

Leikkonan María Birta Bjarnadóttir tók örlagaríku ákvörðun fyrir tíu árum þegar hún lagði inn pöntun fyrir málverki hjá listamanninum Ella Egilssyni. Í dag eru þau búsett í Los Angeles í Bandaríkjunum, gift og eiga eina dóttur, Ignaciu, tveggja ára.

„Fyrir nákvæmlega 10 árum síðan tók ég bestu ákvörðun lífs míns. Ég ætlaði að kaupa málverk eftir Ella Egilsson. Aldrei hefði mig grunað að þessi ákvörðun myndi umturna lífi mínu,“ segir María Birta í hjartnæmri færslu á Instagram.

„Með þessum skilaboðum var ég að hleypa fallegustu, góðhjörtuðustu, duglegustu, traustustu og hreinlega mögnuðustu manneskju heimsins inn í líf mitt og það yrði sko aldrei aftur snúið.

Með þennan mann mér við hlið er allt betra. Hann hefur gefið mér allt sem ég hefði nokkru sinni viljað í lífinu og látið alla mína drauma rætast. Ég tel mig vera heppnustu konu í heimi.

Takk fyrir að vera okkur allt Elli. Betri manneskju er ekki hægt að hugsa sér,“ skrifar María Birta.

Þá birti María Birta skjáskot af fyrstu samskiptum hjónanna sem hófust á spurningunni: „Smá pæling. gerirðu einhvern tímann stór verk?“

María Birta

Tengdar fréttir

„Maðurinn minn er besti pabbinn í öllum heiminum!“

„Það er alveg ofboðslega margt spennandi framundan, en því miður ekkert sem ég get talað um að svo stöddu,“ segir leyndardómsfull María Birta Bjarnadóttir aðspurð um framtíðarplön í viðtali við Makamál. 

Fabjúl­öss feður

Birtingarmynd föðurhlutverksins er fjölbreytt og flókin. Þar má nefna nýbakaða feður, margra barna feður, stjúpfeður, einstæða feður, verðandi feður og feður yfir fertugt, svo fátt eitt sé nefnt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×