Körfubolti

Skoraði fyrsta þrist kvennaliðsins í efstu deild frá upphafi og endaði með fimm

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Þórskonur unnu fyrsta leik sinn í efstu deild í 45 ár. Nýliðarnir ætla að láta til sín taka í deildinni í vetur.
Þórskonur unnu fyrsta leik sinn í efstu deild í 45 ár. Nýliðarnir ætla að láta til sín taka í deildinni í vetur. @thormflkvk

Hrefna Ottósdóttir var stjarna kvöldsins þegar nýliðar Þórs hófu leik í Subway deild kvenna með góðum sigri á Stjörnunni í gærkvöldi.

Hrefna skoraði alls sautján stig í leiknum en þar af komu fimmtán þeirra með skotum fyrir utan þriggja stiga línuna.

Hrefna skoraði einmitt fyrstu þriggja stiga körfu Þórskvenna í efstu deild frá upphafi þegar hún kom liðinu í 11-4 eftir tæplega þriggja mínútna leik.

Þetta var nefnilega fyrsti leikur Þórsliðsins í efstu deild frá árinu 1978 eða í 45 ár.

Svo langt er síðan að Þórskonur spiluðu meðal þeirra bestu að þá var ekki búið að taka upp þriggja stiga regluna í körfuboltanum hér heima.

Hrefna ætlaði sér greinilega að ná þessu því hún tók þriggja stiga skot eftir rúmar þrjátíu sekúndur. Hún var því bæði fyrsta Þórskonan í sögunni til að skjóta þriggja stiga skoti og hitta úr því líka.

Hrefna skoraði fimm þrista í leiknum og það verður fróðlega að sjá hvort hún eða liðsfélagi hennar nái því meti í vetur.

Hún hefur nú skorað 83 prósent af þriggja stiga körfum Þórs í efstu deild kvenna.

Þetta var þó ekki fyrsta þriggja stiga karfa Hrefnu í efstu deild því hún skoraði eina þriggja stiga körfu fyrir Hauka þegar hún spilaði á Ásvöllum veturinn 2017-18.

„Það er algjör hvalsreki að semja aftur við eina bestu þriggja stiga skyttu landsins. Það er engin undra, enda elskar Hrefna að gera allt hluti þrefallt og leggur sig fram við að vera sem besta þrefalda eintakið af sjálfri sér. Hún gerir allt þrisvar sinnum á æfingu, og mér skilst að hún geri allt þrefallt heima líka, enda algjör fagkona. Því var eina vitið að hún yrði áfram númer 9, enda er það þrisvar sinnum þrír,“ sagði Daníel Andri Halldórsson, þjálfari Þórsliðsins, í samtali við miðla Þórs þegar hún framlengdi samning sinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×