Erlent

Stríð glæpa­gengja í Sví­þjóð: Vill fá herinn til að að­stoða lög­regluna

Atli Ísleifsson skrifar
Magdalena Andersson er fyrrverandi forsætisráðherra Svíþjóðar og leiðtogi stjórnarandstöðunnar í landinu.
Magdalena Andersson er fyrrverandi forsætisráðherra Svíþjóðar og leiðtogi stjórnarandstöðunnar í landinu. EPA

Magdalena Andersson, leiðtogi sænskra Jafnaðarmanna og fyrrverandi forsætisráðherra, hefur hvatt til þess að sænski herinn verður kallaður til til að aðstoða lögregluna í baráttu sinni við glæpagengin í landinu.

Sjaldan hafa ofbeldisverk sem tengjast átökum glæpagengja verið eins áberandi í Svíþjóð og nú. Síðasta sólarhringinn eru þrjú dauðsföll rakin til átakanna og er septembermánuður orðinn sá mannskæðasti í fjögur ár. Það sem af er mánuðinum hafa ellefu dauðsföll verið rakin til átaka glæpagengja.

Andersson, sem gegndi embætti forsætisráðherra á árunum 2021 til 2022, segir í samtali við Aftonbladet að morgunljóst sé að sænska ríkisstjórnin verði að bregðast við og það harkalega.

Hún segir nauðsynlegt að ráðast hratt í lagabreytingar til að opna á að herinn geti aðstoðað lögreglu í vinnu þeirra gegn glæpagengjunum.

„Eftirlit sem lögregla sinnir gæti herinn sinnt. Þar fyrir utan sé tæknileg þekking í hernum sem gæti nýst,“ segir Andersson.

Dómsmálaráðherrann Gunnar Strömmer segir að það sem Svíar hafi upplifað síðasta sólarhringinn sé nokkuð sem ekki eigi að þurfa að þola í opnu samfélagi. Ríkisstjórnin hefur nýverið fyrirskipað að fangelsismálayfirvöld ráðist í gerð sérstakra unglingafangelsa sem eigi að vera tilbúin 2026. Stór hluti þeirra sem standa fyrir skotárásum og sprengingum eru ungir piltar, undir lögaldri.

Þrennt sem þarf til

Andersson er ekki eini leiðtogi stjórnarandstöðuflokks sem krefst harðra aðgerða. Þannig segir Nooshi Dadgostar, leiðtogi Vinstriflokksins, að þrennt þurfi til að stöðva ofbeldisölduna sem nú ríður yfir landið. 

„Það snýst um að fá manneskjur eins og Rawa Majid framseldan, brjóta fíkniefnamarkaðinn á bak aftur, og stöðva allan niðurskurð til skólamála og félagsþjónustu til að koma í veg fyrir að ungt fólk leiðist inn á þessa braut,“ segir Dadgostar.

Rawa Majid, sem Dadgostar, vísar til er leiðtogi Foxtrot-glæpagengisins, einu umfangsmesta glæpagengi Svíþjóðar. Hann gengur undir nafninu „Kúrdíski refurinn“ og stýrir veldi sínu frá Tyrklandi.

Muharrem Demirok, formaður Miðflokksins, segir að stjórnmálamenn verði sömuleiðis að axla ábyrgð, hætta öllu rifrildi og koma sameinuð fram. „Ég er reiðubúinn að hreinsa dagskrána mína til að okkur takist að stöðva þetta.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×