Innlent

Ætlar að setja reglur um notkun fylli­efna með hraði

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Willum Þór Þórsson segist ætla að vinna málið hratt.
Willum Þór Þórsson segist ætla að vinna málið hratt. Vísir/Vilhelm

Heilbrigðisráðherra ætlar að setja reglur um notkun fylliefna á Íslandi. Hann segir að málið verði að vinna hratt og vonast til að á þessu ári verði notkun fylliefna háð skýrum takmörkunum.

Í Kompás sem sýndur var í vikunni er fjallað um hætturnar sem geta falist í því að hér á landi gilda engar reglur um hverjir mega sprauta fylliefni í varir eða andlit annarra. Læknar segjast ítrekað og í áraraðir hafa kallað eftir reglum um efnin, án árangurs.

Heilbrigðisráðherra segist fagna umræðunni, lítur málið alvarlegum augum og ætlar að setja reglur um notkun fylliefna. Hann segir að í lögum um lækningatæki sé lagastoð til að setja reglugerð um notkun fylliefna og að það verði fyrsta skref.

„Ég er búin að fyrirskipa það í ráðuneytinu í framhaldinu að fara hratt í það að nýta reglugerðarheimildina sem er í lögum um lækningatæki samhliða því að horfa til laga um heilbrigðisstarfsmenn. Þar hefur þá Embætti landlæknis um leið eftirlit með þeirri starfsemi og þar myndi þá koma fyrir hverjum er heimilað að nýta þessi efni og hvernig og hafa þá þekkingu til. Það er það sem vantar,“ segir Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra.

Willum fagnar umræðunni um fylliefnin og segir stöðuna alvarlega.Vísir/Vilhelm

Boðar einnig heildarlöggjöf og lítur til Svía

Hann segist vilja vinna málið hratt og að reglugerð sé sú leið til að bregðast við með skjótum hætti. Vinna sé þegar hafin í ráðuneytinu.

„Og svo samhliða hef ég beðið um að við horfum til heildarlöggjafar eins og þá leið sem Svíar hafa farið en það mun taka aðeins lengri tíma.“

Innan tíðar reiknar hann með að einungis læknar, hjúkrunarfræðingar með handleiðslu læknis og tannlæknar muni koma til með að mega nota fylliefni líkt og í nágrannaríkjunum.

Og þetta mun gerast? „Já.“

Hvenær? „Ég get ekki dagsett það nákvæmlega en þetta þarf að gerast hratt, ég geri mér grein fyrir því en í dögum og vikum get ég ekki sagt nánar til um. En við erum komin á þennan stað að setja reglurnar.“

Gerist þetta á þessu ári? „Ég vona það.“


Tengdar fréttir

Í lífs­hættu eftir fegrunar­með­ferð: Sagt að leita ekki til læknis

Á Íslandi eru efni notuð á ólögmætan hátt við fegrunarmeðferðir og ekkert eftirlit er með ófaglærðu fólki sem starfar oft í skjóli villandi starfsheita. Í Kompás er rætt við lækni sem segir markaðinn stjórnlausan og Díönu sem lenti í lífshættu eftir meðferð sem byggði á alvarlegri vanþekkingu.

Býður upp á bótox án nokkurrar læknis­menntunar

Meðferðaraðili í Reykjavík býður upp á bótox þrátt fyrir að vera ekki með læknismenntun. Snyrtifræðingur segist ítrekað hafa tilkynnt stofuna, en að ekkert sé aðhafst.

Snyrti­fræðingar vilja reglu­gerð frá ráðu­neytinu

Fé­lag ís­lenskra snyrti­fræðinga gerir al­var­legar at­huga­semdir við vinnu­brögð af því tagi sem lýst er í sjón­varps­þættinum Kompási á Stöð 2 þar sem ó­fag­lærðir sinna fegrunar­með­ferðum með fylli­efnum. Þetta kemur fram í til­kynningu frá fé­laginu.

Slegin eftir um­fjöllun Kompáss og kallar eftir reglu­gerð ráð­herra

 Formaður velferðarnefndar Alþingis hefur sent Willum Þór Þórssyni, heilbrigðisráðherra, skriflega fyrirspurn um hvort hann hyggist skrifa reglugerð um notkun fylliefna og efna til að leysa upp fylliefnin. Hún segist slegin vegna þess sem fram kom í umfjöllun Kompáss í gær. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×