Lífið

Sólar­geislinn Amanda í Holta­görðum

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Amanda Rós Zhang nýtur mikilla vinsælda meðal viðskiptavina Bónuss í Holtagörðum.
Amanda Rós Zhang nýtur mikilla vinsælda meðal viðskiptavina Bónuss í Holtagörðum.

Amanda Rós Zhang hefur unnið í Bónus í tólf ár og er þekkt fyrir glaðværð og þýtt viðmót á kassanum í Holtagörðum, þar sem hún mætir viðskiptavinum ávallt með sólskinsbros á vör. Við mæltum okkur mót við Amöndu á kassanum í Íslandi í dag í fyrradag.

Þeir sem leggja leið sína í búðina að staðaldri þekkja eflaust flestir hina lágvöxnu og upplitsdjörfu Amöndu í sjón - hafa jafnvel oft spjallað við hana um daginn og veginn. 

Amanda er 54 ára og býr í Breiðholti með syni sínum og kærustu hans. Hún á einnig ættleidda dóttur sem býr í Kína, sem á barn - og Amanda því orðin amma. Amanda kom til Íslands skömmu eftir aldamót með þáverandi manni sínum en leiðir þeirra skildu. „Sumt fólk er bara vandamál!“ segir Amanda kímin.

Það hafi þó alls ekki alltaf verið auðvelt að búa á Íslandi. En hún tileinkaði sér snemma ákveðna lífsspeki sem hefur reynst henni vel í leik og starfi; að taka öllum sem hún hittir með opnum örmum, elska náungann og einblína alltaf á það góða.

„Þú ert Jesús, ég er Búdda. Ég læri mikið af Búdda. Læri að vera góður, opin, elska fólk. Ef þú ert góður við fólk, þá er fólk líka gott við þig. Ef þú brosir fyrir fólk, þá brosir fólk líka fyrir þig,“ segir Amanda.

Brot úr viðtalinu við Amöndu úr Íslandi í dag má horfa á í spilaranum hér fyrir ofan. Annað brot úr þættinum, þar sem fjallað var um sviplegt andlát Jóa, afgreiðslumanns í Krónunni, og undurfallega minningargrein sem skrifuð var um hann má svo horfa á hér fyrir neðan. Þátturinn í heild er á Stöð 2+.


Tengdar fréttir

Engillinn á af­greiðslu­kassanum

„Ég bara varð að gera þetta,“ segir Viktor Ólason, markaðsstjóri úr Hafnarfirði og höfundur minningargreinar, sem vakti mikla athygli í síðustu viku. Þar minntist Viktor brosmilds afgreiðslumanns í Krónunni, Jóhannesar Sævars Ársælssonar, sem hafði mikil áhrif á hann. Við kynntumst þeim Viktori og Jóa heitnum í Íslandi í dag í gær.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×