Innlent

Féll fram af svölum í Vestur­bæ

Árni Sæberg skrifar
Maðurinn féll fram af svölum í Vesturbænum.
Maðurinn féll fram af svölum í Vesturbænum. Vísir/Vilhelm

Maður féll fram af svölum í Vesturbæ Reykjavíkur í morgunsárið. Hann var fluttur á bráðamóttöku.

Í dagbókarfærslu lögreglu fyrir daginn segir að tilkynnt hafi verið um slasaðan mann í Vesturbænum. Hann hafi fallið fram af svölum og málið sé í rannsókn. Varðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu segir í samtali við Vísi að maðurinn hafi verið fluttur á bráðamóttöku í morgunsárið.

Alvarlegt vinnuslys í Laugardal

Þá segir einnig að tilkynnt hafi verið um vinnuslys í Laugardal. Sá sem í slysinu lenti hafi hlotið mikla áverka og verið fluttur á bráðamóttöku til aðhlynningar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×