Lífið

Tómas Lemarquis býr stundum í rútu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Tómas hefur innréttað rútuna smekklega.
Tómas hefur innréttað rútuna smekklega.

Stórleikarinn Tómas Lemarquis býr í gamalli rútu á ferðum sínum um landið og hann er að innrétta hana milli þess sem hann flýgur til Hollywood eða Evrópu til að leika í heimsþekktum bíómyndum eða sjónvarpsseríum.

Leikarinn notar núna rútuna sem skrifstofu. En Tómas er gríðarlega eftirsóttur leikari og hann býr mestan part ársins erlendis vegna verkefna. 

Vala Matt fór og skoðaði þessa ævintýralegu rútu og fékk að heyra um spennandi kvikmynda og sjónvarps verkefni Tómasar.

Rætt var við Tómas í Íslandi í dag á Stöð 2 í gærkvöldi en hér að neðan má sjá brot úr þættinum. Hægt er að sjá þáttinn í heild sinni á Stöð 2+.

Klippa: Tómas býr stundum í rútu





Fleiri fréttir

Sjá meira


×