Íslenski boltinn

Viktor Bjarki yfir­gefur KR og ráðinn yfir­þjálfari hjá Víkingum

Aron Guðmundsson skrifar
Viktor Bjarki Arnarson er mættur í Fossvoginn þar sem að hann kannast aðeins við sig
Viktor Bjarki Arnarson er mættur í Fossvoginn þar sem að hann kannast aðeins við sig Mynd: Víkingur Reykjavík

Viktor Bjarki Arnarsson hefur verið ráðinn í starf yfirþjálfara yngri flokka hjá knattspyrnudeild Víkings Reykjavíkur og kemur hann til félagsins frá KR þar sem að hann gegndi sömu stöðu. 

Frá þessu er greint í tilkynningu á vef Víkinga en Viktor Bjarki er öllum hnútum kunnugur hjá Víkingum eftir tíma sinn þar sem leikmaður á sínum tíma. 

Viktor á að baki 210 leiki í efstu deild hér á landi, þar af 75 leiki fyrir lið Víkings Reykjavíkur en eftir að leikmannaferlinum lauk hefur hann verið að taka sín fyrstu skref á þjálfaraferlinum.

Undanfarin tvö ár hefru Viktor, sem lokið hefur KSÍ þjálfaragráðu A, starfað sem yfirþjálfari yngri flokka hjá KR. 

Er honum óskað góðs gengis á nýjum vettvangi í tilkynningu sem KR sendi frá sér. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×