Sport

Aron Einar og Arnór minnast systur sinnar sem lést langt fyrir aldur fram

Aron Guðmundsson skrifar
Systkinin Arnór Þór Gunnarsson, Tinna Björg Malmquist Gunnarsdóttir og Aron Einar Gunnarsson
Systkinin Arnór Þór Gunnarsson, Tinna Björg Malmquist Gunnarsdóttir og Aron Einar Gunnarsson Samsett mynd

Bræðurnir Aron Einar og Arnór Þór Gunnars­synir minnast systur sinnar, Tinnu Bjargar Mal­mquist Gunnars­dóttur sem féll frá á dögunum að­eins fjöru­tíu ára að aldri, í hjart­næmum færslum á sam­fé­lags­miðlum.

Tinna Björg var eldri systir þeirra bræðra og skrifar Aron Einar, landsliðsfyrirliði Íslands í fótbolta, að ljóst sé að Tinnu hafi verið ætlað eitthvað meira og stærra þar sem að hún sé nú.

„Við pössum upp á litlu fjölskylduna þína. Hvíldu í friði elsku Tinna mín,“ skrifar Aron Einar í færslu á samfélagsmiðlinum Instagram þar sem að hann minnist systur sinnar. 

Arnór Þór, fyrrum landsliðsmaður Íslands í handbolta, minnist systur sinnar einnig í færslu á Instagram og segir minningu Tinnu vera ljós í lífi þeirra. 

„Hvíldu í friði elsku Tinna.“

Ætlað veigamikið hlutverk á himnum

Á lífsleið sinni hefur Tinna Björg haft góð áhrif á samferðafólk sitt. Í minningargrein um hana, sem rituð er á heimasíðu íþróttafélagsins Þórs frá Akureyri, er það ljóst.

„Í undurfallegum texta Bjarna Hafþór Helgasonar „Ég er Þórsari“ standa þessi orð: 

„Hér liggja gamalgrónar rætur, ég gleymi aldrei hver ég er. Í hjarta mínu er ég Þórsari, er ég þórsari, er ég þórsari í hjarta mínu er ég þórsari, alltaf er ég þórsari“

„Þessi orð eiga svo vel nú á þessari sorgar - og kveðjustund þegar við Þórsarar kveðju Tinnu Björg Malmquist Gunnarsdóttur í hinsta sinn. Ræturnar hennar eru svo sannarlega gamalgrónar og rekjanlegar allt til upphafsins árið 1915 og alla tíð hefur sú fjölskylda er Tinna er sprottin af, vitað hvaðan þau komu og verið í hjarta sínu Þórsari, alltaf Þórsari. Við Þórsarar allir nær og fjær lútum höfði.“

Dómur almættisins hafi og muni allta verða á stundum sem þessum óskiljanlegur.

„En í ljósi hans og þess að honum verður ekki breytt, trúum við því að Tinnu Björgu sé nú ætlað veigamikið hlutverk á himnum í ljósinu eilífa, og hugur okkar og innileg samúð er hjá börnum hennar Tinnu, foreldrum og systkinum,“ segir í minningargrein Þórsara um Tinnu Björg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×