Innlent

Ríkisstjórnin eins og hjón sem rífast úti á svölum

Árni Sæberg skrifar
Þorbjörg segir stjórnarheimiliserjur hafa náð hámarki í gær.
Þorbjörg segir stjórnarheimiliserjur hafa náð hámarki í gær. Vísir/Vilhelm

Þingmaður Viðreisnar líkir ríkisstjórninni við óhamingjusöm hjón sem rífast úti á svölum svo allt hverfið heyri. Öll orka hennar fari í stjórnarheimiliserjur.

Þetta segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar, á Facebook. Tilefnið er ávarp Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, há­skóla-, iðnaðar- og ný­sköpunar­ráð­herra, á Sjávarútvegsdeginum í gær, þar sem hún gerði samráðherra sinn Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra að andlagi gríns.

„Í gær náðu þessar heimiliserjur svo nýjum áfanga þegar einn ráðherra fann á sér að það sem ráðstefnugestir staddir á Sjávarútvegsdeginum í Hörpu þyrftu mest að heyra væri rant [raus] um hvað samstarfsráðherra hennar er glataður. Skilaboðin: „Jú, við ætlum að búa áfram saman í tvö ár en sæll hvað ég þoli þessa dömu ekki.“ Skilaboðin flutt í mikrafón í stórum veislusal. Það er auðvitað allt eðlilegt við þetta, eða hvað?“ spyr Þorbjörg Sigríður.

Ekkert gerist á meðan stjórnin rífst

Hún segir að brosa megi að því sem hún kallar alkula ríkisstjórnarsamband en vandamálið fyrir þjóðina sé að öll orka ríkisstjórnar Íslands fari í þessar innbyrðis erjur. Á meðan gerist ekkert annað.

Fólkið og fyrirtækin í landinu finni fyrir verðbólgu og vaxtahækkunum. Það séu málin sem fólk er að hugsa um. Hvert sem komið er snýst umræðan um það, ekki um það hver þolir hvern minnst í ríkisstjórninni.

„Fólk þarf forystu og stefnufestu en ekki þessi endalausu upphlaup. Ríkisstjórn sem er svo vandræðalega sundruð getur ekki lagt neinar lausnir á borð fyrir fólkið í landinu. Í dag er þessi stjórn sem gerir orðið lítið annað en að framkalla vandræðalegar senur stór hluti af vanda fólksins í landinu. Og það verður hún samkvæmt dagskrá í heil tvö ár í viðbót.“

Fleiri furða sig á ummælunum

Þorbjörg Sigríður er ekki eini þingmaður stjórnarandstöðunnar sem furðar sig á ummælum Áslaugar Örnu í ávarpinu í gær.

„Æ hvað þetta er eitthvað aumt að nýta tækifærið með fullan sal af útgerðarmönnum að sparka í Svandísi, gefa í skyn að hún standi nú með þeim sama hvað Svandís sé að bralla,“ segir Oddný Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar á Facebook. 

Hun spyr sig einnig hvernig stemningin sé við ríkisstjórnarborðið.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×