Íslenski boltinn

Ísa­fjarðar­bær flýtir fram­kvæmdum og gervi­gras­vellirnir verða klárir fyrir Bestu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Vestramenn voru frábærir í úrslitakeppninni.
Vestramenn voru frábærir í úrslitakeppninni. Vísir/Diego

Vestri tryggði sér sæti í Bestu deild karla í fótbolta um síðustu helgi með því að vinna Aftureldingu í úrslitaleik umspils Lengjudeildar karla.

Þetta verður í fyrsta sinn frá árinu 1983 sem Vestfirðingar eiga lið í efstu deild fótboltans og mikill áfangi fyrir starfið hjá Vestra.

Í 520. fundi bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar í gær var samþykkt að flýta framkvæmdum við velli Vestra.

Það á að setja gervigras á bæði aðal- og æfingavöll félagsins.

Bæjarstjórn lagði til á nýjasta fundi sínum að það yrði tilfærsla á framkvæmdum ársins 2023. Þetta varðar verkefnin gervigras á Torfnesi en einnig innanhúslýsingu íþróttahússins á Torfnesi, ofanflóðavarnir á Flateyri, framkvæmdir við gamla gæsló og hreystitækjagarð á Ísafirði, og breytingar á endurnýjum vatnslagna í Staðardal og hreinsimannvirkja fráveitu á Flateyri og Suðureyri.

Þetta var samþykkt sem þýðir að báðir gervigrasvellirnir eiga að verða tilbúnir fyrir þátttöku Vestra í Bestu deild karla 2024.

Búast má við að Besta deildin hefjist strax í byrjun apríl á næsta ári og það eru því ekki margir mánuðir til stefnu.

Hér fyrir neðan má hlusta á umræður um gervigrasvellina á fundi bæjarstjórnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×