Innlent

Risa bjórhátíð í Hveragerði um helgina

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Elvar Þrastarson bruggmeistari hjá Ölverk í Hveragerði, sem er með risa bjórhátíð um helgina ásamt sínu fólki á veitingastaðnum.
Elvar Þrastarson bruggmeistari hjá Ölverk í Hveragerði, sem er með risa bjórhátíð um helgina ásamt sínu fólki á veitingastaðnum. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Þrjátíu og tvö brugghús af öllu landinu taka þátt í Bjórhátíð Ölverks í Hveragerði um helgina, sem fer fram í gömlu heitu ylræktargróðurhúsi í bæjarfélaginu.

Brugghús hafa sprottið upp eins og gorkúlur um allt land á síðustu ár og virðist ekkert lát vera á fjölgun þeirra. Eigendur og starfsmenn brugghúsanna, ásamt fjölda gesta eyði helginni saman í Hveragerði á bjórhátíð Ölverks Pizzu og brugghús. Elvar Þrastarson er bruggmeistari og eigandi Ölverks, ásamt Laufeyju Sif Lárusdóttur.

„Þetta er risa hátíð fer stækkandi. Fyrri partinn er alltaf bjór í boði, alveg upp í 300 mann, sem koma hvorn daginn og svo seinni partinn breytum við þessu í skemmtistað og erum með tónlistarmenn og DJ fram á nótt,“ segir Elvar.

Og það er mikil bruggstemming og bjórstemming í þjóðfélaginu eða hvað?

„Já, ég held að fólk sé bara tilbúið að prófa eitthvað nýtt þótt það sé ekki mikið magn í einu þá fer það og kaupir sína vananlegu kippu og tvo þrjá af einhverju nýju og spennandi með þér einhverju íslensku.“

Ölverk er vinsæll veitingastaður í Hveragerði, sem Elvar og Laufey Sif eiga.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Elvar segist alltaf vera að brugga nýja bjóra og prófa sig áfram með hvað virkar og hvað ekki.

„Við erum alltaf allavega með átta mismunandi bjóra á krana í hvert skipti og svo náttúrulega er það besta við Ísland í dag að þú getur komið beint til okkar og keypt bjór í dós og labbað með hann út úr brugghúsinu.

Já, það er alveg nýtt?

„Já, tók gildi í sumar, þá breyttist þetta, þannig að það er komið fullt af flottum bjórbúðum allt í kringum Ísland út af því að þetta eru 30 og eitthvað lítil brugghús, sem mega selja þér áfengi beint út úr húsi, sem er skemmtileg viðbót viðbót,“ segir Elvar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×