Innlent

Yfirgefinn alelda bíll í Klettagörðum

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Slökkvilið var kallað út í annað sinn á þremur dögum vegna yfirgefins alelda bíls.
Slökkvilið var kallað út í annað sinn á þremur dögum vegna yfirgefins alelda bíls. vísir

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út í kvöld vegna alelda bíls við Klettagarða í Reykjavík. Bíllinn var yfirgefinn að sögn varðstjóra.

Vísi barst eftirfarandi mynd af vettvangi.

Engin hætta var á ferðum. vísir

Pálmi Hlöðversson varðstjóri segir slökkvilið hafa komið að bílnum alelda en enginn eigandi var nálægt. Bíllinn sem um ræðir var jeppi.

„Engin hætta á ferðum og enginn þarna nálægt,“ segir hann.

Stutt er síðan að slökkvilið var kallað út vegna yfirgefins alelda bíls við Krýsuvíkurveg. Það mál er komið inn á borð lögreglu. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×