Innlent

„Á ég ekki bara að kýla þig einu sinni og þá erum við kvitt?“

Jón Þór Stefánsson skrifar
Atvikin þrjú áttu sér stað á heimili konunnar á Akureyri í janúar á síðasta ári.
Atvikin þrjú áttu sér stað á heimili konunnar á Akureyri í janúar á síðasta ári. Vísir/Tryggvi

Héraðssaksóknari hefur ákært mann fyrir nokkur brot gegn fyrrverandi unnustu sinni á heimili hennar á Akureyri í þrjú skipti í janúar á síðasta ári.

Ákæruliðir málsins eru þrír talsins, en sá fyrsti varðar atvik sem átti sér stað á nýársdag árið 2022. Þar er manninum gefið að sök að hafa farið í heimildarleysi inn á heimili konunnar og nauðgað henni. Hún hafði þá ítrekað beðið hann um að hætta og yfirgefa heimili sitt.

Annar ákæruliðurinn varðar atvik sem átti sér stað um það bil tveimur vikum seinna. Aftur hafi maðurinn farið á heimili konunnar í leyfisleysi. Hún beðið hann ítrekað um að fara. Hann hafi þá tekið í hár hennar, gripið um hendur hennar og snúið upp á þær, í tvígang slegið hana í rassinn.

Í það skipti er honum jafnframt gefið að sök að hafa hótað konunni.

„Þegiðu og hlustaðu. Þú ert fífl. Ég slæ þig fokking fast utan undir ef þú fokking heldur ekki kjafti. Er þetta þakklætið fyrir að, horfðu á mig, horfðu á mig. Er þetta þakklætið fyrir það að ég sit fyrir framan dómstóla og játa milljón króna bótakröfu,“ er haft eftir honum í ákærunni, sem og: „Á ég ekki bara að kýla þig einu sinni og þá erum við kvitt, ha?“

Aftur er maðurinn grunaður um að fara í heimildarleysi á heimili konunnar á Akureyri í þriðja ákæruliðnum, en það atvik átti sér daginn eftir annað atvikið.

Þar á hann að hafa slegið konuna utanundir með flötum lófa. Fyrir vikið hafi hún hlotið roða í andliti. Aftur kemur fram að konan hafi þrábeðið manninn um að fara af heimili hennar.

Konan krefst þriggja milljóna króna í miska- og skaðabætur.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×