Erlent

Palestínumenn flýja í massavís áður en innrás Ísraela hefst

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Palestínumenn flúðu í massavís úr norðurhluta Gasastrandar til suðurhlutans eftir að ísraelski herinn gaf frá sér fordæmalausa rýmingarskipan fyrir yfirvofandi innrás hans inn í Gasasvæðið.
Palestínumenn flúðu í massavís úr norðurhluta Gasastrandar til suðurhlutans eftir að ísraelski herinn gaf frá sér fordæmalausa rýmingarskipan fyrir yfirvofandi innrás hans inn í Gasasvæðið. AP/Hatem Moussa

Palestínumenn hafa flúið í massavís frá norðurhluta Gasastrandar í dag eftir að Ísrael sagði rúmlega milljón íbúum svæðisins að rýma það áður en innrás ísraelska hersins hefst í fyrramálið.

Loftárásum hefur rignt yfir Gasaströndina í dag á meðan íbúar flúðu í trukkum, bílum og vögnum eftir aðalveginum út úr Gasaborg. Sjötíu voru drepnir þegar loftárásir Ísraela hæfðu þrjár bílalestir fullar af Palestínumönnum.

Hamas hefur sagt Palestínumönnum að hunsa rýmingarskipan Ísraela og halda kyrru fyrir. Almennir borgarar sem flýja eru auðvitað ekki tryggðir með öruggt skjól, hvorki á leiðinni né á suðurhluta Gasastrandarinnar. Útlitið er því ansi svart fyrir Palestínumenn.

Fordæma kröfu Ísraela um rýmingu

Fjöldi stofnana og alþjóðasamtaka hafa fordæmt fyrirmæli Ísraela til Palestínumanna um að rýma svæðið. Sameinuðu þjóðirnar hvöttu Ísraela til að hætta við skipanir sínar og vöruðu við því að slíkur fjöldaflótti geti haft hörmulegar afleiðingar.

Alþjóðaráð Rauða krossins sendi frá sér neyðarkall vegna fyrirmæla Ísraels sem ráðið segir ekki samræmast alþjóðlegum mannúðarlögum. Sólarhringur væri ekki nægur tími til að rýma alla íbúa svæðisins, þar á meðal fólk með fötlun, aldraða, sjúklinga og veika og særða einstaklinga á sjúkrahúsum. Íbúar hefðu sömuleiðis engan öruggan stað til að fara á vegna þess að allt svæðið er umsetið.

Heilbrigðisstarfsmenn á Gasaströndinni hafa jafnframt neitað að yfirgefa sjúklinga sína og þar með svæðið. Læknar án landamæra fordæmdu rýmingarkröfu Ísraela og sögðu að fresturinn sem starfsfólki Al Awda-spítalans var gefinn hafi verið alltof stuttur. Eftir yfirlýsingar stofnunarinnar fengu starfsmenn hennar frekari frest þar til í fyrramálið.

„Gleymdu mat, gleymdu rafmagni, gleymdu eldsneyti. Einu áhyggjurnar núnar eru hvort þú hefur það af, hvort þú lifir,“ sagði Nebal Farsakh, talskona Palestínska rauða hálfmánans á Gasaströndinni.

Frá því átökin hófust fyrir um viku síðan hafa um það bil 1.900 Palestínumenn verið drepnir á svæðinu, samkvæmt heilbrigðisráðuneyti Gasastrandar. Ísraelska ríkisstjórnin segir að Hamas-liðar hafi drepið meira en 1.300 Ísraela í árásinni á laugardag og að ísraelski herinn hafi drepið um 1.500 Hamas-liða.

Innrásin „aðeins upphafið“ og ætlar að útrýma Hamas

Auk þess að hafa skrúfað fyrir rafmagn, vatn og lokað á matarsendingar til Gasastrandar hafa Ísraelar jafnað heilu hverfin við jörðu í loftárásum undanfarna viku. 

Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, ætlar að útrýma Hamas.AP/Abir Sultan

Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, lofaði að útrýma Hamas í sjónvarpsræðu á föstudag. Þá sagði hann að yfirvofandi innrás ísraelska hersins væri „aðeins upphafið“ og að Ísrael myndi ráðast á óvini sína með „fordæmalausum krafti“.

Netanjahú sagðist einnig hafa talað við Joe Biden og aðra þjóðarleiðtoga og hann hefði aflað gríðarlegs alþjóðlegs stuðnings fyrir Ísrael.

Ísraelski herinn greindi frá því að hann hefði gert smærri árásir inn í Gasaströndina til að berjast við vígamenn Hamas og leita að þeim 150 sem var rænt í skyndiárás Hamas í síðustu viku.

Yoav Gallant, varnarmálaráðherra Ísrael, segir að varnarsveitir Ísraela muni taka Hamas „út úr Gasa og af jörðu brott“ með innrás sem muni valda „varanlegri breytingu“ á palestínska svæðinu.

Ísraelskir skriðdrekar á leið til Gasastrandar.AP/Ariel Schalit

Utanríkisráðherra Íslands tjáir sig um ástandið

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra Íslands, gaf frá sér yfirlýsingu á Twitter/X fyrr í kvöld um ástandið á Gasasvæðinu.

Hún sagðist þar hafa þungar áhyggjur vegna þess harmleiks sem er að eiga sér stað í Ísrael og Gaza og vegna hættunar á frekar stigmögnun. Þá sagði hún að Ísland hefði fordæmt barbarískar gjörðir Hamas og að það væri aldrei hægt að réttlæta hryðjuverk. 

„Ísrael hefur skýran rétt á því að vernda sig innan marka alþjóðalaga,“ sagði hún í færslunni.

Hún sagði að vernda þyrfti almenna borgara og innviði bæði í Ísrael og á Gasaströndinni í samræmi við alþjóðleg mannúðarlög. Alþjóðalög færðu ríkjum bæði réttindi og skuldbindingar og hvort tveggja væri heilagt.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×