Innlent

Ríkis­stjórnin verði líka að for­dæma það sem gerist á Gasa

Lovísa Arnardóttir og Vésteinn Örn Pétursson skrifa
Fidu Abu libdeh og Qussay Odeh  sögðu tímabært að fordæma aðgerðir Ísraelshers í Palestínu eins og aðgerðir Hamas í Ísrael.
Fidu Abu libdeh og Qussay Odeh sögðu tímabært að fordæma aðgerðir Ísraelshers í Palestínu eins og aðgerðir Hamas í Ísrael. Vísir/Steingrímur Dúi

Mikill fjöldi safnaðist saman á Austurvelli í dag á samstöðufundi með Palestínu. Yfirskrift viðburðarins á Facebook var „Stöðvið fjöldamorð Ísraelshers“.

Nokkuð þungt var yfir fundargestum en flutt voru tvö ávörp og svo sungið. Þau Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, og Ögmundur Jónasson, fyrrverandi ráðherra fluttu ávörp.

„Við erum að sýna Palesínumönnum samstöðu með því að vera hér. Við hugsum til þeirra og það er óbærilegt sem er að gerast þar í dag, sagði Fidu Abu libdeh.

Spurð hvað henni finnst um viðbrögð íslenskra stjórnvalda og ákallið fundargesta segir Fidu Sólveigu Önnu hafa orðað það vel í ávarpi sínu. 

„Við höfum ekkert að segja. Við erum búin að segja það þúsund sinnum áður. Nú verður ríkisstjórnin að gera eitthvað í þessu og fordæma það sem er að gerast í Gasa.“

Ákall fundarins var skýrt: Frið í Palestínu. Vísir/Steingrímur Dúi

Spurð hvort þau séu bjartsýn á að það gerist sagði Qussay Odeh að það kæmi ekkert annað til greina en að bregðast við með einhverjum hætti.

„Þetta hefur verið til skammar í heila viku, eða rúmlega það. Það verður að koma eitthvað. Annars eru engin mannréttindi hér.“

Stórar spurningar. Vísir/Steingrímur Dúi

Fidu tók undir það og sagði tímabært að fordæma aðgerðir Ísraela í Palestínu alveg eins og aðgerðir Hamas í Ísrael hafi verið fordæmdar.

„Það verður að vera strax. Það er enginn tíma til að hugsa eða funda. Það verður að gera það strax,“ sagði Qussay að lokum.

Kjartan Sveinn Guðmundsson segir ekkert réttlæta stríðsglæpi. Vísir/Steingrímur Dúi

„Ég held að eftir því sem við fáum að heyra fleiri sjónarhorn af því sem er að gerast þarna á þessu svæði verður það alltaf augljósara að þetta eru ekki tvær jafnar hliðar. Þær eru báðar að berjast fyrir sínum tilverurétti, á mjög mismunandi forsendum,“ sagði Kjartan Sveinn Guðmundsson. Hann sagði önnur gera það því hún er lokuð inni og hin á röngum forsendum.

Mikill fjöldi var samankominn á Austurvelli í rigningunni. Vísir/Steingrímur Dúi

„Út af því það var framið þjóðarmorð fyrir 70 árum síðan. Það réttlætir ekki að fremja stríðsglæpi eða stofna til risastórra einangrunarbúða í dag.“


Tengdar fréttir

Ís­land verði að taka af­stöðu gegn á­rásum Ísraels á Gasa

Formaður félagsins Ísland-Palestína segir íslensk stjórnvöld verða að taka afstöðu gegn ástandinu á Gasaströndinni, sem Ísrael hafi skapað. Boðað hefur verið til samstöðufundar á Austurvelli, á meðan innrás Ísraelshers á Gasa er yfirvofandi.

Hamas liðar hafi verið orðnir ör­væntingar­fullir

Albert Jóns­son, sér­fræðingur í al­þjóða­málum, segir ó­hjá­kvæmi­legt að Ísraels­her muni her­nema Gasa­ströndina. Hann segir Hamas liða hafa verið farnir að fyllast á­hyggjum af eigin stöðu vegna þýðu í sam­skiptum Ísraela við aðrar Araba­þjóðir í Mið­austur­löndum.

Hafi þrjár klukku­stundir til að flýja Gasa

Þúsundir Palestínu­manna halda á­fram að flýja frá norður­hluta Gasa­strandar í að­draganda inn­rásar Ísraels­hers. Herinn hefur til­kynnt að inn­rásin verði gerð á landi, í lofti og af sjó. Íranir hafa hótað Ísraels­mönnum að bregðast við haldi Ísraelar á­fram hernaði sínum gegn Gasa.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×