Fótbolti

Eyjólfur verður að­stoðar­þjálfari Hall­dórs hjá Blikum

Smári Jökull Jónsson skrifar
Halldór Árnason þjálfari Blika og Eyjólfur handsama samninginn.
Halldór Árnason þjálfari Blika og Eyjólfur handsama samninginn. Blikar.is

Eyjólfur Héðinsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokksliðs karla hjá Breiðabliki í knattspyrnu. Eyjólfur hefur starfað hjá Blikum síðan á síðasta ári.

Þjálfaramál Breiðabliks hafa verið í brennidepli að undanförnu. Óskar Hrafn Þorvaldsson, sem stýrt hefur liðinu síðan árið 2020, óskaði eftir því að láta af störfum í desember þegar Blikar ljúka keppni í Sambandsdeildinni. Stjórn knattspyrnudeildar Blika ákvað hins vegar að Óskar myndi hætta störfum nú þegar.

Aðstoðarþjálfarinn Halldór Árnason fékk þá stöðuhækkun og var gerður að aðalþjálfara liðsins og nú hefur Eyjólfur Héðinsson verið kynntur til leiks sem nýr aðstoðarþjálfari.

Eyjólfur á glæsilegan leikmannaferil að baki en hann lék tæplega 300 leiki í öllum keppnum hér á landi auk þess að spila sem atvinnumaður með GAIS í Svíþjóð og Sönderjyske og Midtjylland í Danmörku.

Eyjólfur hefur verið í starfi hjá Blikum síðan á síðasta ári en hann hefur séð um unga leikmenn félagsins sem eru að stíga sín fyrstu skref´i meistaraflokki og verið hluti af þjálfarateymi meistaraflokksins.


Tengdar fréttir

Óskar Hrafn hættur störfum sem þjálfari Breiðabliks

Óskar Hrafn Þorvaldsson hefur tilkynnt starfslok sín hjá Breiðablik. Hann óskaði þess sjálfur að klára riðlakeppni Sambandsdeildarinnar með félaginu en var tilkynnt á föstudag að svo yrði ekki og hann myndi láta af störfum eftir leik Breiðabliks gegn Stjörnunni. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×