Íslenski boltinn

Siggi Raggi tvisvar farið á fund KR: „Þetta starf heillar“

Aron Guðmundsson skrifar
Sigurður Ragnar Eyjólfsson er í leit að næsta þjálfaragiggi. Þjálfarastarfið hjá KR heillar hann. Sigurður Ragnar er KR-ingur í grunninn og er á þeirri skoðun að KR-ingur eigi að vera ráðinn inn sem þjálfari karlaliðs félagsins
Sigurður Ragnar Eyjólfsson er í leit að næsta þjálfaragiggi. Þjálfarastarfið hjá KR heillar hann. Sigurður Ragnar er KR-ingur í grunninn og er á þeirri skoðun að KR-ingur eigi að vera ráðinn inn sem þjálfari karlaliðs félagsins Vísir/Arnar Halldórsson

Sigurður Ragnar Eyjólfs­son hefur í tví­gang rætt við for­ráða­menn knatt­spyrnu­deildar KR varðandi þjálfara­stöðuna hjá karla­liði fé­lagsins sem nú er á lausu. Sigurður Ragnar er mikill KR-ingur, ber taugar til fé­lagsins og er á þeirri skoðun að það eigi að ráða KR-ing í þjálfara­stöðuna. Fé­lagið geti hins vegar ekki beðið lengi eftir því að ráða inn nýjan þjálfara.

„Ég farið í tvö við­töl hjá KR,“ svarar Sigurður Ragnar, betur þekktur sem Siggi Raggi, þegar að blaðamaður spyr hann út í það hvort hann hafi rætt við félagið um þjálfarastöðuna sem þar er laus. 

„Ég er á þeirri skoðun að KR eigi að ráða KR-ing.“

KR er í leit að þjálfara eftir að ákveðið var að endurnýja ekki samning Rúnars Kristinssonar. Nafn Sigga Ragga, sem lét af störfum sem þjálfari Keflavíkur á síðasta tímabili, er eitt þeirra sem hefur verið orðað við þjálfarastöðuna og hann er opinskár varðandi stöðu sína í þeim kapal.

Rúnar Kristinsson, fyrrum þjálfari KRVísir/Hulda Margrét

„KR er í við­tals­ferli og eru, veit ég, einnig að taka við­töl við fleiri þjálfara. Menn þar á bæ eru að vanda valið, fara ítar­lega í gegnum þetta ferli.“

Eins og fyrr sagði ber hann miklar taugar til félagsins. Var á árum leikmaður þess, bæði í yngri flokkum og svo í meistaraflokki.

„Ég er KR-ingur. Þar ólst ég upp og spilaði nokkur ár í meistara­flokki fé­lagsins. Ég ber miklar taugar til fé­lagsins og er á þeirri skoðun að KR eigi að ráða KR-ing. En ég er auð­vitað ekki hlut­laus þegar kemur að þeirri skoðun,“ segir Sigurður Ragnar og hlær.

Vill helst þjálfa áfram

Það er alveg ljóst þegar að maður talar við Sigurð Ragnar um KR að þjálfara­starfið hjá fé­laginu heillar hann mikið.

„Já þetta starf heillar. Mér finnst það mjög spennandi og ég sé mikla mögu­leika hjá fé­laginu. Auð­vitað hefur árangurinn síðustu ár verið lakari en oft áður. KR er að fara í gegnum endur­skipu­lag og hafa á­kveðið að fá nýja rödd inn. Rúnar hefur skilað þarna mjög góðu starfi og nú er tæki­færi fyrir nýjan mann að koma inn og halda á­fram upp­byggingu og vonandi, með tíð og tíma, ná sama árangri og KR náði hérna áður fyrr.“

Siggi Raggi á Meistaravöllum í Vesturbænum sem þjálfari Keflavíkur. Sjáum við hann í hinum boðvanginum á næsta tímabili?Vísir/Diego

Í upphafi októbermánaðar varpaði Fót­bolti.net ljósi á orð­róm þess efnis að Sigurður Ragnar yrði mögu­lega ráðinn yfir­maður knatt­spyrnu­mála hjá KR. Starfs­við­tölin sem Sigurður Ragnar hefur farið í hjá KR til þessa hafa ekki snúist um þá mögu­legu stöðu hjá fé­laginu og væri hann frekar til í þjálfarastöðuna.

„Ég er mest spenntur fyrir því að halda á­fram að þjálfa,“ segir Sigurður Ragnar. „Þessi starfs­við­töl sem ég hef farið í hjá KR hafa ekki snúist um stöðu yfir­manns knatt­spyrnu­mála hjá fé­laginu.“

En myndi sú staða heilla þig?

„Það er eitt­hvað sem er erfitt að segja til um fyrir fram. Eitt­hvað sem við þyrftum að ræða ef það væri hugsunin hjá for­ráða­mönnum KR.“

Boltinn hjá KR

KR er ekki eina fé­lagið sem Sigurður Ragnar hefur rætt við.

„Það hafa fleiri fé­lög haft sam­band við mig og kannað á­hugann. Ég er þó mest spenntur fyrir KR ef það er í boði. Þá hef ég einnig leitað út fyrir land­steinana, dreift feril­skránni minni þar. Ég hef, í gegnum tíðina, starfað mikið er­lendis. Þar eru líka mögu­leikar.

En kannski kýs maður helst að starfa á­fram hérna heima. Hér er ég með mína fjöl­skyldu, tvö börn, og vil því helst vera ná­lægt þeim.“

Frá leik KR á Meistaravöllum í sumarVísir/Diego

„Ég segi bara eins og Óskar Hrafn. Ég er KR-ingur og er mjög spenntur fyrir þessu starfi. Ég verð alltaf KR-ingur þó ég hafi spilað fleiri liðum og þjálfað önnur lið í gegnum tíðina. Auð­vitað ber maður alltaf taugar til upp­eldis­fé­lagsins.“

Hve­nær býstu við að fá vís­bendingar um næstu skref hjá KR?

„Boltinn er hjá KR. Þeir eru að ráða í þetta starf og það sama gildir náttúru­lega um önnur fé­lög. Þetta er árs­tíminn þar sem fé­lög eru að ráða í störfin og fara yfir leik­manna­mál. Mín til­finning er sú að þetta fari að gerast.

„Allir verið að bíða eftir því að sjá hvað Óskar Hrafn gerir“

Sigurður Ragnar segir stöðuna hjá Óskari Hrafni Þorvaldssyni, fyrrum þjálfara Breiðabliks, hafa haft sín áhrif á stöðu mála. 

„Auð­vitað hafa allir verið að bíða eftir því að sjá hvað Óskar Hrafn gerir. Hvort að hann fari í Hau­gesund. Á því strandar kannski þessi þjálfara­ka­pall sem fer alltaf í gang á haustin. Ég held að það fari nú að styttast í á­kvörðun. Enda geta fé­lögin ekki beðið of lengi því að það eru leik­menn sem þurfa að fá svör við því hver verði þjálfari liðsins og eins eru leik­menn lausir á markaðnum sem að lið, sem eru með þjálfara, eru að pikka upp.“

Óskar Hrafn Þorvaldsson hefur farið út til Noregs og kannað aðstæður hjá Haugesund FK Vísir/Diego

Sigurður Ragnar beinir þarna ljósi að þeirri stöðu sem upp er kominn varðandi Óskar Hrafn Þor­valds­son, fyrrum þjálfara Breiða­bliks. Óskar hefur verið í við­ræðum við norska úr­vals­deildar­fé­lagið Hau­gesund FK en hefur á sama tíma verið sterk­lega orðaður við þjálfara­stöðuna hjá KR sem er, eins og hjá Sigurði Ragnari, í grunninn hans lið.

Sam­kvæmt fréttum í Noregi virðist Óskar Hrafn standa einn eftir sem sá þjálfari sem for­ráða­menn Hau­gesund vilja semja við. Hins vegar hefur ekki verið gengið frá samningum þeirra á milli.

Ekki ákjósanlegt að bíða of lengi

Hefurðu þá til­finningu gagn­vart stöðu mála hjá KR að for­ráða­menn fé­lagsins séu að bíða eftir því að sjá hvað gerist hjá Óskari Hrafni?

„Ég vil ekki leggja þeim orð í munn. For­maður knatt­spyrnu­deildar KR hefur alveg gefið það út að fé­lagið ætli sér að taka góðan tíma í þessa ráðningu. Á sama tíma er Óskar Hrafn ekki kominn með samning við Hau­gesund og það fé­lag ekki öruggt með að halda sér uppi í norsku úr­vals­deildinni.“

„Ég veit það ekki. Mér finnst ráðningar­ferlið hjá Hau­gesund vera orðið nokkuð langt. Ég held að það taki ekki svona langan tíma að gera ráðningar­samning. Það er spurning hvort að Óskar Hrafn sé að bíða eftir því að sjá hvort að fé­lagið haldi sér uppi.

En KR getur heldur ekki beðið of lengi. Það eru að­kallandi mál, eins og leik­manna­málin, sem þarf að fara í. Ég held að sú staða að bíða of lengi sé ekki á­kjósan­leg fyrir KR.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×