Innlent

Ætlar að leggja sig alla fram við söluna Ís­lands­banka

Atli Ísleifsson og Helena Rós Sturludóttir skrifa
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir tók við embætti fjármála- og efnahagsráðherra í dag.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir tók við embætti fjármála- og efnahagsráðherra í dag. Vísir/Vilhelm

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir segir ljóst að nýjar áherslur fylgi alltaf nýju fólki. Hún segir óhætt að segja að ekkert í hennar störfum bendi til þess að hún sé ekki fær um að bera ábyrgð á áframhaldandi sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka.

Þetta sagði Þórdís Kolbrún í samtali við fréttastofu eftir að hún hafði komið lyklunum að utanríkisráðuneytinu í hendur Bjarna Benediktssonar. Hún tekur sjálf við lyklunum að fjármála- og efnahagsráðuneytinu klukkan 13:45 í dag. 

„Það fylgja alltaf nýjar áherslur nýju fólki. Ég hlakka til að máta mig inn í þessi stóru og miklu verkefni á nýjum stað sem hafa líka annars konar tengingu við fólk og skipta allar fjölskyldur máli. Þannig að ég kveð þetta ráðuneyti gríðarlega þakklát fyrir þessi tvö ár sem ég hef hérna verið þar sem hefur reynt á mikið.

Við lifum tíma þar sem reyna mjög á utanríkisþjónustu og utanríkisráðherra, því miður, þar sem það eru að gerast hlutir þar sem minni kynslóð var lofað að myndi ekki gerast aftur. Á nýjum stað taka við stór og mikilvæg verkefni og ég hlakka mikið til,“ segir Þórdís Kolbrún. 

Ráðherrann segist kveðja utanríkisráðuneytið með miklum söknuði. „Þetta hafa verið stórkostleg tvö ár og í þessu ráðuneyti er einfaldlega ótrúlega framúrskarandi fólk, bæði hérna heima og út um allan heim. Auðvitað eru verkefni sem eru á slíkum skala og hafa þannig áhrif á veröldina alla. Ísland er ekki ónæmt fyrir þeim breytingum. Þannig að þetta hefur verið alveg gríðarlega lærdómsríkt, gefandi og það er mjög góð tilfinning sem fylgir því að finna – það sem maður segir – hefur áhrif á stærri mynd en ég hef nokkru sinni haft áður tækifæri til að hafa áhrif á.“

Tekur sæti Bjarna í ríkisfjármálanefnd

Þórdís segist munu taka sæti Bjarna í ríkisfjármálanefnd og að hann fari sjálfur úr nefndinni.

Aðspurð um þær raddir sem segja að Sjálfstæðisflokkurinn sé ekki vel til þess fallinn að stjórna áframhaldandi sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka segir Þórdís að það sé óhætt að segja að ekkert í hennar störfum bendi til þess að hún sé ekki fær um að bera ábyrgð á slíku ferli. 

„Það er auðvitað ákveðin vinna í gangi og ég mun leggja allt kapp á það að klára þá vinnu og gera þetta með sem vönduðustum hætti og með sem flestum. Það er forgangsverkefni að klára þessa sölu þar sem það er það sem er rétt að gera fyrir hagsmuni Íslendinga og ríkissjóðs, að við losum okkur undan þessu eignarhaldi og nýtum þá fjármuni í annað vitsamlegra. En það þarf að gera það almennilega og ég mun leggja mig alla fram í því,“ segir Þórdís Kolbrún. 


Tengdar fréttir

Boðar ekki breytingar í nýju ráðu­neyti

Nýr utanríkisráðherra segir ekki tímabært að boða breytingar í ráðuneytinu. Fyrstu skref verði að koma sér fyrir og setja sig inn í stöðu mála.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×