Innlent

Leita af sér allan grun um að fleiri séu í húsinu

Samúel Karl Ólason, Vésteinn Örn Pétursson og Margrét Björk Jónsdóttir skrifa
Fólk var í húsinu þegar eldurinn kviknaði.
Fólk var í húsinu þegar eldurinn kviknaði. Vísir/Vilhelm

Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins barst á fjórða tímanum í dag tilkynning um reyk í iðnaðarhúsnæði í Funahöfða. Einn var fluttur á slysadeild. Slökkvilið hefur slökkt eldinn, en er enn við störf á vettvangi, og leitar af sér grun um að fleiri hafi verið í húsinu.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu kviknaði eldurinn í einu herbergi í húsinu. Fólk var í húsinu þegar eldurinn kviknaði og var að minnsta kosti einn fluttur á sjúkrahús en ekki liggur fyrir hvort sá var alvarlega slasaður.

Reykkafarar fóru inn í húsið til að ganga úr skugga um að allir væru komnir út.

Funahöfði 7 er að mestu í eigu tveggja félaga sem eru í eigu þriggja manna; Péturs Árna Jónssonar, framkvæmdastjóri HEILD fasteignafélagsins og aðaleiganda útgáfufélags Viðskiptablaðsins, Jóns Einars Eyjólfssonar, stjórnarmaður hjá ELJU starfsmannaþjónustu, og Arnars Haukssonar, sem starfað hefur sem stjórnandi hjá ELJU.

Félögin heita Akrotiri ehf. og Agros: Akrotirie ehf. Þá á félagið ÞR eignir ehf, sem er að stórum hluta í eigu lífeyrissjóða, stórt rými í byggingunni.

Ekki fyrsti bruninn á Funahöfða

Síðast kom eldur upp á Funahöfða í apríl á þessu ári. Þá var þó um að ræða annað hús en það sem kviknaði í í dag. 

Í júlí 2018 kviknaði einnig eldur í götunni, þá í Funahöfða 17a. Einn var fluttur á slysadeild vegna gruns um reykeitrun. Lögregla handtók síðar íbúa í húsinu, grunaðan um íkveikju. 

Leita af sér allan grun

Fréttastofa ræddi við Jörgen Valdimarsson, varðstjóra hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, á vettvangi. 

„Hér varð eldur í einu herbergi. Það var mikill eldur þegar við komum hérna, en við erum búnir að ná að slökkva þetta og erum að reyklosa og leita af okkur grun um að það séu einhverjir fleiri þarna inni,“ segir Jörgen.

Einn var fluttur á slysadeild vegna brunans, en Jörgen kvaðst ekki hafa upplýsingar um ástand hans. Talið er að viðkomandi hafi verið inni í herberginu þegar eldurinn kom upp.

Jörgen Valdimarsson, varðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu.Vísir/Vilhelm

Jörgen segir íbúðir hafa verið í húsinu, en ekki séu taldar líkur á að fleiri hafi verið í húsinu.

„En við viljum bara vera alveg 110 prósent vissir,“ segir Jörgen. Eldsupptök séu ekki ljós. „Nú er bara að reyklosa þetta og taka saman.“

Allt tiltækt lið hafi verið sent á vettvang, enda hafi eldurinn verið mikill. 

„Það logaði út um glugga þegar við komum.“

Hann sagðist ekki geta áætlað hversu lengi í viðbót slökkvilið yrði á vettvangi.

„Við verðum bara hér þar til við erum búnir,“ sagði Jörgen.

Vísir/Vilhelm



Vísir/Vilhelm



Vísir/Vilhelm

Fréttin hefur verið uppfærð.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×