Innlent

Látinn eftir bruna á Funa­höfða

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Einn er látinn eftir að eldur kom upp í iðnaðarhúsnæði þar sem tugir manna búa.
Einn er látinn eftir að eldur kom upp í iðnaðarhúsnæði þar sem tugir manna búa.

Maðurinn sem slasaðist alvarlega í bruna í Funahöfða 7 í Reykjavík í gær er látinn. Tveir aðrir sem slösuðust eru á batavegi. 

Eldurinn kom upp í herbergi á neðri hæð hússins um fjögurleytið í gær. Einn var inni í herberginu þar sem eldurinn kom upp og var hann fluttur alvarlega slasaður á sjúkrahús. Í samtali við fréttastofu segir Eiríkur Valberg, lögreglufulltrúi hjá miðlægri deild, að maðurinn hafi látist á gjörgæsludeild.

Maðurinn var fluttur alvarlega slasaður á sjúkrahús, þar sem hann lést af sárum sínum.Vísir/Vilhelm

Ekki liggja fyrir upplýsingar um aldur eða þjóðerni mannsins sem lést. Eiríkur segir að tveir aðrir sem einnig voru fluttir á slysadeild séu á batavegi. Eldsupptök eru ókunn en miðlæg deild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fer nú með rannsókn málsins.

Eldurinn kom upp í herbergi á neðri hæð hússins. Þegar slökkvilið kom á staðinn stóðu eldtungur út um gluggann.Vísir/Vilhelm

Fjöldi fólks, mest erlent verkafólk, býr í húsnæðinu þar sem eldurinn kom upp. Funahöfði 7 er að mestu í eigu tveggja félaga sem eru í eigu þriggja manna; Péturs Árna Jónssonar, framkvæmdastjóra HEILD fasteignafélagsins og aðaleiganda útgáfufélags Viðskiptablaðsins, Jóns Einars Eyjólfssonar, stjórnarmanns hjá ELJU starfsmannaþjónustu, og Arnars Haukssonar, sem starfað hefur sem stjórnandi hjá ELJU.

Félögin heita Akrotiri ehf. og Agros: Akrotirie ehf. Þá á félagið ÞR eignir ehf, sem er að stórum hluta í eigu lífeyrissjóða, stórt rými í byggingunni. Fram kemur í fasteignaskrá að Funahöfði 7 sé skrifstofu- og iðnaðarhúsnæði.


Tengdar fréttir

Í lífs­hættu eftir brunann á Funa­höfða

Þrír voru fluttir á slysadeild þegar eldur kom upp í dag í iðnaðarhúsnæði á Funahöfða, þar sem fjöldi fólks býr. Áður hafði verið greint frá því að aðeins einn hefði þurft aðhlynningu á sjúkrahúsi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×